Stefna Skutuls
Skutull.is er lifandi landsmálavefur, tileinkaður ýmsu sem er ofarlega á baugi i þjóðmálaumræðunni hverju sinni, ekki síst málefnum sem tengjast Vestfjörðum. Að vefsíðunni stendur hópur áhugafólks um framsækna og faglega fjölmiðlun.
Markmið okkar er að efla umræðu og fjölga valkostum í fréttamiðlun á Vestfjörðum. Almenningi gefst kostur á að senda inn efni og athugasemdir við greinar. Jafnframt er tekið við fréttatilkynningum og auglýsingum til birtingar.
Það er okkur metnaðarmál að setja fréttir og umfjöllun fram á faglegan og gagnrýninn hátt, þar sem jafnræði sjónarmiða og óhlutdræg upplýsingaöflun verða starfsregla. Lykilorð okkar eru: Ferskleiki, fagmennska og virðing .

Á skutull.is er gerður greinarmunur á unnum fréttum og fréttatilkynningum. Fréttatilkynningar eru birtar óbreyttar á ábyrgð sendenda. Þær fréttir sem birtar verða í nafni vefsins og blaðamanna hans eru á ábyrgð vefsíðunnar.
Sendið fréttir, greinar og tilkynningar á skutull@skutull.is