Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is

Verslunarmannafélag Ísafjarđar

Verslunarmannafélag Ísafjarðar var stofnað var stofnað 26. júlí 1957. Fyrsti formaður þess var Jón Páll Halldórsson skrifstofumaður. Félagið gekk þegar í Landssamband íslenskra verslunarmanna, en formaður þess Sverrir Hermannsson vann að undirbúningi og flutti ávarp á stofnfundi félagsins. Félagið gekk í Alþýðusamband Íslands með Landssambandi íslenskra verslunarmanna árið 1964.  Verslunarmannafélagið gerðist aðili að Alþýðusambandi Vestfjarða árið 1977, en þá hafði málið verið til umræðu í félaginu um nokkur ár.
   
Á aðalfundi í september 1975 var samþykkt stækkun á félagssvæði V.Í. þannig að það næði auk Ísafjarðarkaupstaðar yfir Ísafjarðarsýslur báðar að Bolungarvík undanskilinni, þar sem starfaði sérstakt félag. Verslunarmannafélag Bolungarvíkur sameinaðist félaginu í júní 1995.

Verslunarmannafélagið eignaðist árið 1990 sumarbústað við Húsafell í Borgarfirði. Bústaðurinn var seldur árið 1999, en í staðinn keypt orlofshús í Ölfusborgum. Félagið eignaðist einnig íbúð við Ásholt í Reykjavík árið 1993.

Verslunarmannafélagið átti um tíma aðild að sameiginlegri skrifstofu verkalýðsfélaganna á Ísafirði, en opnaði eigin skrifstofu árið 1991 í Hafnarstræði 14 og réð til hennar starfsmann. Félagið flutti starfsemi sína í hús Vestra hf. (Ísfirðingshúsið) árið 1997 og árið eftir hóf Freygerður Ólafsdóttir störf á skrifstofu félagsins.

Verslunarmenn samþykktu í allsherjaratkvæðagreiðslu að félag þeirra tæki þátt í stofnun Verkalýðsfélags Vestfirðinga haustið 2002 og mynduðu sérstaka deild í félaginu.

Samkvæmt gögnum félagsins hafa formenn þess verið:
        Jón Páll Halldórsson    1957-1960
        Haukur Ingason        1960-1961
        Gunnar Jónsson        1962-1964
        Garðar Einarsson        1964-1973
        Geir A. Guðsteinsson    1973-1977
        Eiríkur Sigurðsson    1977-1978
        Friðrik Adolfsson        1978-1980
        Anna M. Helgadóttir    1980-1981
        Elín Tryggvadóttir        1981-1986
        Salmar Jóhannsson    1986-1992
        Gylfi Guðmundsson    1992-1998
        Finnur Magnússon    1999-2002.

Eldri félög verslunarmanna

Áður höfðu starfað tvö félög verslunarmanna á Ísafirði. Fyrsta félagið var stofnað 8. febrúar 1905 og nefndist Verzlunarmannafjelag Ísafjarðarkaupstaðar og sýslna. Það var sameiginlegt félag kaupmanna, verslunarstjóra og starfsmanna verslana í bænum. Félagið hélt hátíðlegan frídag verslunarmanna á Ísafirði í fyrst sinn í júlí 1905 með skemmtiferð inn í Tunguskóg. Starfsemi félagsins lagðist af eftir nokkur ár, þó það væri við lýði að nafninu til fram undir 1920.

Annað félag var stofnað 14. maí 1937 undir merkjum Alþýðusambands Íslands. Það hét Verslunarmannafélagið, Ísafirði og starfaði til ársins 1943. Gögn félagsins eru varðveitt í Héraðsskjalasafninu á Ísafirði. Félagið var hreint launþegafélag og náði samningum við verslunareigendur, bakarí og bæjarstofnanir á Ísafirði. Fyrsti formaður Verslunarmannafélagsins var Gunnar Andrew, en seinni árin Sigurjón Sigurbjörnsson. Stór hluti félagsmanna starfaði hjá Kaupfélagi Ísfirðinga. Þegar starfsfólk Kaupfélagsins ákvað að stofna sérstakt starfsmannafélag og semja beint við atvinnurekanda sinn, lagðist verslunarmannafélagið niður. Merki þess var endurreist árið 1957, eins og fram kemur efst á þessari síðu.

Heimild: Skjalasafn verkalýðshreyfingarinnar á Vestfjörðum. Deild 26. Verslunarmannafélag Ísafjarðar.
Vefumsjón