Verkalýđs- og sjómannafélag Kaldrananeshrepps, Drangsnesi
Verkalýðsfélag Kaldrananeshrepps, eins og félagið hér í upphafi, var stofnað 17. júní 1934 í Samkomuhúsinu Baldri á Drangsnesi. Aðalhvatamaður að stofnun félagsins var Guðmundur Guðni Guðmundsson og varð hann fyrsti formaður þess.
Á Drangsnesi hefur vélbátaútgerð og fiskvinnsla verið undirstaða þéttbýlis. Eins og á öðrum þéttbýlisstöðum sem byggja afkomu sína á sjávarútvegi hafa skipst á skin og skúrir í atvinnu og afkomu fólks og fyrirtækja á staðnum, allt eftir því sem fiskigengd, markaðsmál og stjórnmál hafa þróast bæði innan lands og utan.
Verkalýðsfélagið fór rólega af stað, en árið 1935 gerðu verkamenn sem unnu við vegagerð í hreppnum verkfall til að fá sömu laun fyrir vinnu sína og verkamenn annarsstaðar á landinu. Þeir fengu greidda 90 aura á tímann, en vegagerðarmenn í Kaldrananeshreppi, sem aðallega voru bændur, fengu 75 aura. Undir merkjum verkalýðsfélagsins náðu verkamenn fram sínum kröfum.
Á Drangsnesi voru atvinnurekendur alls ráðandi, eins og víðar, og margir hræddust atvinnukúgun ef þeir gengju fram fyrir skjöldu í verkalýðsbaráttunni. Árið 1936 var verkalýðsfélaginu neitað um samkomuhúsið til fundahalds og var þá haldinn fundur í hálfbyggðu húsi eins verkamanns, Halldórs Jónssonar frá Asparvík. Einn atvinnurekandi reyndi að komast inn á fundinn og hafa áhrif á umræður þar, en var vísað frá. Sagt var að Halldór hafi átt erfitt með að fá vinnu á Drangsnesi fyrst á eftir. Í kjölfar slíkra deilna við atvinnurekendur gekk verkalýðsfélagið í Alþýðusamband Íslands árið 1937. Það gekk síðar einnig til samstarfs við önnur félög í Alþýðusambandi Vestfjarða.
Nokkrir af formönnum félagsins hafa verið:
Guðmundur Guðni Guðmundsson,
Einar Sigvaldason,
Torfi Guðmundsson,
Helgi Sigurgeirsson,
Magnús B. Andrésson,
Kristján Loftsson,
Anna Gunnarsdóttir,
Ingi Vífill Ingimarsson,
Hafdís Baldvinsdóttir,
Haraldur Vignir Ingólfsson,
Sigurmunda Ásbjörnsdóttir.
Verkalýðs- og sjómannafélag Kaldrananeshrepps samþykkti haustið 2003 að sameinast Verkalýðsfélagi Vestfirðinga. Félagsmenn voru þá 44; verkafólk og sjómenn á Drangsnesi.
Heimildir: Vinnan, afmælishefti 1966, bls. 78-79.
Skýrslur félagsins til ASV.