Stofnþing Alþýðusambands Vestfjarða 20. mars 1927
(Skjalasafn Verkalýðshreyfingarinnar á Vestfjörðum. Deild 1, Alþýðusamband Vestfjarða. 10.1 Gjörðabók Verklýðssambands Vesturlands 1927-1942.)
„Ár 1927 Sunnudaginn 20. mars kl 10 árdegis var stofnþing Verklýðssambands Vesturlands sett í Kaffistofu Templara á Ísafirði:
Ingólfur Jónsson kosinn fundarstjóri og nefndi hann til ritara Halldór Ólafsson.
1. Ing. Jónsson hóf máls og ræddi um hve nauðsynlegt væri að koma á sambandi milli verkalýðsfél. á Vestfjörðum og las upp nöfn þeirra fulltrúa er mæt[t]ir vóru:
Frá Jafnaðarmannafélaginu, Ísafirði Ingólfur Jónsson, Halldór Ólafsson.
Frá V.L.F. Baldur, Ísafirði Júlíus Símonarson, Árni Sigurðsson.
Frá Sjómannafél. Ísfirðinga: Eiríkur Finnbogason, (Eiríkur Einarsson.)
Frá V.L.F Hnífsdælinga Ingimar Bjarnason, Helgi Hannesson.
Frá V.L.F Bolungavíkur Benóní Sigurðsson, Pétur Sigurðsson:
Frá V.L.F Önundarfjarðar: Sveinn Sveinsson Hinrik Þorláksson. Vóru þessir fulltrúar með takmarkað umboð: fulltr Sjómannafél Ísfirðinga V.L.F Bolungavíkur og V.L.F Önundarfjarðar, en fullyrtu að félögin myndu ganga í Sambandið. Lýstu fulltrúar Önfirðinga yfir því að þeir teldu félag sitt meðal stofnenda.
2. Fundarstj. las lagafrumvarp er fyrir þinginu lá og skýrði það fyrir fundarmönnum.
3. Samþ í einu hljóði að stofna sambandið. Til máls tóku (í því sambandi) Hinrik Þorláksson, Ingimar Bjarnas. Pétur Sigurðsson kvaðst ekki hafa umboð frá sínu fél. til að greiða atkvæði á þinginu en greiða atkvæði fyrir sína hönd., Sveinn Sveinsson. Eiríkur Finnbogas. kvaðst ekki hafa umboð félagsins um þáttöku í stofnun sambandsins fyrir þess hönd en sagðist vera persónulega samþykkur stofnun þess og lofaði að vinna að því í sínu félagi. Akveð[ið] að þeir sem takmarkað umboð hafa megi greiða atkvæði á þinginu.
4. Lögin upplesin og samþ.
...
5. Kosin stjórn
Forseti Ingólfur Jónsson Ritari Halldór Ólafsson (yngri.) gjaldkeri Finnur Jónsson Meðstjórnendur Ingimar Bjarnason, Sveinn Sveinsson Varaforseti Eiríkur Einarsson Vararitari Helgi Hannesson Varagjaldkeri Árni Sigurðsson Endurskoðendur Hinrik Þorláksson, Halldór Ólafsson (eldri) til vara Baldvin Þórðarson.
6. Rætt um útgáfu blaðs fyrir sambandið til máls tóku Ingólfur Jónsson, Eiríkur Einarsson og Ingimar Bjarnason svohlj. tillaga samþ. „Fundurinn felur sambandsstjórn að íhuga blaðmálið og hrinda í framkvæmd útgáfu blaðs fyrir sambandið, ef hún álítur það fært. Hinrik Þorláksson"
7. Rætt um stofnun nýrra verklýðsfélaga í sambandinu sérstaklega þó á Súgandafirði. Til máls tóku. Ingólfur Jónsson, Hinrik Þorláksson, Benóní Sigurssðon. Pétur Sigurðsson. Eiríkur Finnbogason Ingimar Bjarnason, Arinbjörn Pétursson fél jafnaðarmannafélagsins Akureyri sagði hann nokkuð frá verkalýðshreifingu á norðurlandi og hreifingu jafnaðarstefnunnar yfir leitt. Stefán Stefánsson, Hinrik Þorláksson er mintist á Hvalafriðunnarlögin og lög er banna útlendingum atvinnurekstur hér við land. um sama efni talaði Ing. Jónsson. Voru ræðu menn á einu máli um nauðsyn samtaka verkal. í verslunarmálum kaupgjaldsmálum o.fl:
„Stjórninni falið að utbúa sérstaka leyniskrift fyrir símskeyti viðkomandi málefnum sambandsfélaga.
Fleira ekki gert. Fundi slitið.
Ingólfur Jónsson forseti Halldór Ólafsson (ritari) ".