28.11.2011
Sigurđur Pétursson: Viđ jólatréđ á Ţingeyri
Dýrfirðingar settu nýlega upp leikverk byggt á sögu ungmennafélagsins Höfrungs. Margir tóku þátt í verkinu og ég var einmitt samferða ungum Þingeyringi fyrir nokkrum dögum sem sagði mér frá sýningunni með sjálfsögðu stolti og ánægju. Þetta er það sem einkennir okkar samfélag og gerir það svo verðmætt: Samstaða og stolt yfir því sem við eigum saman.
Þetta stolt yfir sögu okkar og menningu þurfum við að varðveita og efla. Höfum það í huga um leið og við bjóðum aðventuna velkomna. Hugsum til þess að þrátt fyrir alla erfiðleika í þjóðfélaginu, þrátt fyrir erfiða stöðu í byggðum okkar hér vestra, þrátt fyrir skammdegið og skuggahliðar tilverunnar, er hátíð ljóssins í nánd og sólin hækkar á ný og birtan sigrar. Sama verður í þjóðfélaginu og hér í okkar fjörðum. Með bjartsýni og trú, samstöðu og dugnaði munum við sjá betri tíð og bjartari framtíð....
Meira

26.11.2011
Kristinn H. Gunnarsson: Makríllinn - gull hafsins
Algert metár hefur verið í makrílútgerð í Noregi rétt eins og á Íslandi. Norrænir vefir tala um makrílinn sem gull hafsins. Öll met hafa verið slegin í Noregi. Bátar sem selt hafa afla sinn þar hafa fengið himinhátt verð fyrir aflann. Um 260 þúsund tonn af makríl hafa verið seld í gegnum uppboðs- og sölukerfi Norges sildesalgslag fyrir um 60 milljarða ísl króna. Meðalverðið er 242 kr/kg og hefur hækkað um 50% frá síðasta ári. Í september setti báturinn Selvåg Senior met og seldi 850 tonn af ferskum makríl fyrir liðlega 270 kr/kg....
Meira
Meira
21.11.2011
Krsitinn H. Gunnarsson: Línuívilnun í Bolungavík: 5.200 tonn og 1.650 milljónir króna
Línuívilnun hefur þá sérstöðu að útgerðarmenn sitja við sama borð. Við þessar aðstæður er gert úr þar sem hagkvæmast er. Veitt er þar sem bestu miðin eru og styst og ódýrast að sækja fiskinn. Lykilatriðið er að kostnaður við kvótaöflun er sá sami hjá öllum. Í línuívilnun borgar enginn fyrir fiskinn sem felst í ívilnuninni...
Þegar jafnræðið er til staðar kemur skýrt fram mismunandi hagkvæmni veiðanna eftir veiðarfærum og veiðistöðum. Færa má sterkar líkur fyrir því að væri úthlutunarkerfi veiðiheimilda þannig að allir sætu við sama borð myndu veiðarnar þróast líkt og við línuútgerðina. Sjávarplássin við bestu miðin myndu eflast og þannig á það að vera. Sjávarauðlindin og hagkvæmni þess að nýta hana á að ráða byggðaþróuninni. Jafnræðið við öflun veiðiheimilda er lykilatriðið, það sannar línuívilnunin....

17.11.2011
Ólína Ţorvarđardóttir: Upplýsingaskylda í umhverfismálum
Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp um breytingu á lögum um upplýsingarétt um umhverfismál. Þar er lagt til að skerpt verði á frumkvæðis- og viðbragðsskyldu stjórnvalda til að veita almenningi upplýsingar um aðsteðjandi mengunarhættu eða umtalsverðar breytingar á umhverfi. Flutningsmenn auk mín eru þingmennirnir Skúli Helgason, Mörður Árnason og Birgitta Jónsdóttir.
Tilefni þessa frumvarps er díoxínmálið svokallaða frá síðasta ári þegar upp komst um mikla díoxínmengun frá nokkrum sorpbrennslustöðvum.
...Meira
14.11.2011
Sigurđur Pétursson: Til hamingju Ísfirđingar - međ fjármögnun hjúkrunarheimlis
Til hamingju Ísfirðingar allir, - bæði íbúar Ísafjarðarbæjar og nágrannar þeirra í Súðavík og Bolungarvík! Það er mikið ánægjuefni að fjármögnun nýs hjúkrunarheililis fyrir 30 heimilismenn skuli vera skjalfest og undirritað. Með því er tryggt að aldraðir Ísfirðingar, sem ekki eiga þess kost að sjá um sitt heimilishald sjálfir, geti í framtíðinni búið við traustar og öruggar aðstæður í heimilislegu umhverfi með nútímalegri þjónustu og aðbúnaði. Þannig getum við sem samfélag boðið öldruðum þær aðstæður sem sú kynslóð á skilið, sem nú fetar sín síðustu ævispor. Með þessu móti getum við sýnt hug okkar, eins og jafnaðarmenn gerðu árið 1921 þegar þeir stofnuðu fyrsta elliheimili í bæjarfélagi á Íslandi til að skapa öldruðum mannsæmandi ævikvöld....
Meira
Meira