Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
22.03.2009

Sigurjón Ţórđarson: Verkin sýna merkin

Sigurjón Ţórđarson er í öđru sćti á lista Frjálslynda flokksins í Norđvesturkjördćmi
Sigurjón Ţórđarson er í öđru sćti á lista Frjálslynda flokksins í Norđvesturkjördćmi
Þórður Már Jónsson, frambjóðandi Samfylkingarinnar, ungur maður á uppleið, fer mikinn í skrifum sínum og talar um skýra sjávarútvegsstefnu Samfylkingarinnar og fullyrðir að Samfylkingin hafi raunverulegar breytingar á ömurlegu kvótakerfi ofarlega á forgangslista sínum.  Þetta er mikill misskilningur hjá Þórði þar sem Samfylkingin hefur haft einstakt tækifæri með stjórnarsetu sinni til að gjörbreyta sjávarútvegsstefnu sinni en hefur ekki gert það.  Samfylkingin tók nánast heils hugar undir óábyrgar niðurskurðartillögur í fiskveiðiheimildum og hefur alls ekki opnað fyrir nýliðun í atvinnugreininni, heldur viðhaldið höftum og óréttlæti....
Meira
21.03.2009

Ţórđur Már Jónsson: Skýr sjávarútvegsstefna og vilji til breytinga

Ţórđur Már Jónsson, viđskiptalögfrćđingur
Ţórđur Már Jónsson, viđskiptalögfrćđingur
Þykir mér raunar furðu sæta að Karl haldi þessu fram.  Á því fundaferðalagi sem við frambjóðendurnir fórum í fyrir prófkjör okkar voru sjávarútvegsmálin mjög ofarlega á baugi á hverjum einasta fundi, ekki síst vegna harðrar afstöðu minnar gegn óbreyttu kvótakerfi.  Ein af ástæðum þess að ég gekk í raðir Samfylkingarinnar, fyrir rúmum mánuði síðan, var einmitt að ég hafði rætt við marga flokksmenn um sjávarútvegsmálin og eftir þau samtöl var augljóst að áherslur mínar áttu vel upp á pallborð innan flokksins.  Því ákvað ég að gefa kost á mér í prófkjörið á síðustu stundu án nokkurs stuðnings eða fylgis.  Sjávarútvegsmálin og mínar hugmyndir um þau setti ég í algjöran forgang og viðtökurnar voru mjög góðar hvar sem komið var sem aftur skilaði mér góðu gengi í prófkjörinu þrátt fyrir að vera algjörlega óþekktur.  Fullyrðingar Karls um að sjávarútvegsumræðan eigi ekki upp á pallborðið hjá Samfylkingunni eiga því alls ekki við rök að styðjast eins og Karl veit vel sjálfur....
Meira
21.03.2009

Komum hlutum í verk - strax!

Ásbjörn Óttarsson
Ásbjörn Óttarsson

Framundan eru kosningar sem geta orðið einhverjar afdrifaríkustu kosningar sem gengið hefur verið til á lýðveldistímanum.  Núverandi ríkisstjórn hefur þegar valdið vonbrigðum með úrræðaleysi sínu og skýr leiðsögn Sjálfstæðismanna út úr vandanum er afar mikilvæg.  Nýrra vinnubragða er þörf í Alþingishúsinu og nýrra viðhorfa sömuleiðis.  Sókn er besta vörnin í þeim verkefnum sem bíða okkar og því fyrr sem hafist verður handa því betra.  Hvorki atvinnulífið né heimilin í landinu geta þrifist við núverandi aðgerðarleysi og verkefni til framfara í Norðvesturkjördæmi eru fjölmörg.

...
Meira
21.03.2009

Sigurđur Örn Ágústsson: Göngum hreint til verks

Sigurđur Örn Ágústsson
Sigurđur Örn Ágústsson
Í ástandinu sem nú ríkir er mikilvægt að missa ekki sjónar af markmiðinu. Að byggja upp heiðarlegt, réttlátt samfélag sem veitir þegnum sínum frelsi til atvinnu og athafna, svo lengi sem það frelsi er ekki helsi á öðrum, með fjölbreyttu atvinnulífi.

Að mínu viti er ekki nóg að endurskoða starfsemi bankanna heldur verðum við einnig að beina sjónum okkar að íslenskri pólitík. Breyta þarf hugsunarhætti og því hvernig stjórnmálamenn vinna. Ég hef gagnrýnt margt sem gert hefur verið. En til hvers? Til að vita og skilja hvað skal forðast og til hvers skal vanda til í endurreisn íslensks efnahagslífs.

...
Meira
21.03.2009

Erla Friđriksdóttir: Treysti Ásbirni best - nýtum afliđ

Erla Friđriksdóttir, bćjarstjóri í Stykkishólmi
Erla Friđriksdóttir, bćjarstjóri í Stykkishólmi
Þess vegna fagna ég því mjög að Ásbjörn Óttarsson forseti bæjarstjórnar Snæfellsbæjar skuli bjóða sig fram til forystu á þessum lista. Ásbjörn hefur mikla reynslu af sveitarstjórnarstörfum, fyrirtækjarekstri og félagsmálum. Hann hefur lifað og hrærst í heimi sjómennskunnar þar sem menn kalla ekki allt ömmu sína þegar vandamálin koma upp. Hann er sérstaklega vinnusamur, ósérhlífinn, úrræðagóður og umfram allt heiðarlegur maður, virtur og vinsæll í sínu samfélagi. Ég fullyrði að einmitt svona fólk þurfum við á Alþingi, fólk sem þekkir landið, íbúana, auðlindirnar og þorir að taka ákvarðanir þegar það þarf að taka þær. Ég eins og flestir Íslendingar vil sjá breytingar, ný vinnubrögð, nýjar áherslur. Ég treysti Ásbirni Óttarssyni best til þess að leiða okkur sjálfstæðismenn í NV-kjördæmi inn í nýtt Ísland....
Meira
Vefumsjón