Björg Ágústsdóttir: Öflugur fulltrúi, Ásbjörn !
Mér þykir það mikið fagnaðarefni að Snæfellingurinn Ásbjörn Óttarsson skuli bjóða fram krafta sína til þessara verka. Í rúman áratug átti ég þess kost á vettvangi sveitarstjórnarmála að kynnast og vinna með góðu fólki vítt og breitt um landið, sem bæjarstjóri í Grundarfirði. Einn af alöflugustu samstarfsmönnum sem ég var svo heppin að eignast var Ásbjörn Óttarsson. Þau kynni og samstarf við Ása um árabil eru tilefni þessara skrifa....
Meira
Reynir Grétarsson: Ekkert verkefni er of stórt til ađ hjóla í ţađ og ná árangri
Meira
Útgerđarauđvaldiđ vanvirđir launafólk
Meira
Guđrún G. Bergmann: Öflugur frambjóđandi
Þegar ég og maðurinn minn heitinn, Guðlaugur Bergmann, fórum að vinna að umhverfismálum á Snæfellsnesi voru ekki allir hlynntir þessu umhverfiskjaftæði okkar eins og það var kallað. En eftir því sem fólks kynntist betur því sem í starfinu fólst ,fór áhuginn að vakna. Bæjarstjórn Snæfellsbæjar, undir forsæti Ásbjörns, tók hins vegar snemma skýra stefnu í umhverfismálum og hóf verkið með staðfastri stefnu í vinnu að Staðardagskrá 21. Snæfellsbær var síðan leiðandi í samstarfi sveitarfélaga á Snæfellsnesi þegar þau ákváðu að leita eftir umhverfisvottun Green Globe. ...
Meira
Sigurđur Örn Ágústsson: Hart á móti hörđu !
Eitt af því sem brennur á mér og flestum Íslendingum er það kjark- og framtaksleysi sem einkennt hefur rannsókn og aðgerðir í kjölfar efnahagshrunsins. Frá því í október hafa borist fréttir af gegndarlausri sjálftöku eigenda og stjórnenda bankanna, framferði þeirra virðist hafa verið með miklum eindæmum. Lög brotin og farið á svig við reglur. Boðaðar aðgerðir stjórnvalda gegn þessu fólki hafa verið fátæklegar og lítill pólitískur vilji til rannsókna eða athugana, hvað sem veldur.
Hversu magnað er það, að til þurfi þáttarstjórnanda Silfurs Egils til að opna augu ráðamanna fyrir nauðsyn þess að aðhafast? Það er dæmi um úrræðaleysi þingsins og getuleysi þingmanna að hafa ekki fyrir löngu haft forgöngu um að fá þessa konu, eða sambærilegan aðila, hingað til lands til að fræðast um hvað skuli gera og hvernig best verður náð árangri í baráttunni gegn óvinum Íslands.
Meira















