Landsmálavefur á Vestfjörðum | skutull@skutull.is
19.03.2009

Valbjörn Steingrímsson: Rétti tíminn til að breyta

Valbjörn Steingrímsson, íbúi á Blönduósi
Valbjörn Steingrímsson, íbúi á Blönduósi
Ásbjörn Óttarsson sækist eftir fyrsta sæti listans. Hann er maður sem talar tæpitungulaust, er fylginn sér, duglegur og framtaksamur og í hans huga skiptir ekki máli hvort hann er að vinna fyrir kjósendur í Snæfellsbæ eða á Blönduósi svo dæmi sé tekið. Hann þekkir vel til sveitarstjórnarmála og þarfa íbúa hinna dreifðu byggða. Ásbjörn hefur leitt starf sjálfstæðismanna í Snæfellsbæ í 15 ár en flokkurinn hefur verið þar lengi með hreinan meirihluta þannig að ljóst er að þeir sem þekkja hann best og standa honum nærri treysta honum til verka. Það er augljóst....
Meira
19.03.2009

Símon Sturluson: Síðasta prófkjörið

Símon Sturluson, Stykkishólmi
Símon Sturluson, Stykkishólmi

17 einstaklingar hafa gefið kost á sé í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi sem fram fer næstkomandi laugardag.  Mikið af hæfu fólki býður fram krafta sína og þar á meðal er Ásbjörn Óttarsson sem gefur kost á sér í forystusæti.  Ásbjörn er dugmikill og öflugur landsbyggðarmaður sem hefur mikla reynslu, bæði úr atvinnulífinu og af sveitarstjórnarmálum.  Honum treysti ég til að láta rödd landsbyggðarinnar heyrast við Austurvöll.

...
Meira
19.03.2009

Steinþór Bragason: Fjölgun starfa í Ísafjarðarbæ - framhald

Þróun íbúafjölda í Ísafjarðarbæ
Þróun íbúafjölda í Ísafjarðarbæ
« 1 af 3 »

Samstarf Alsýnar ehf. og Atvinnumálanefndar Ísafjarðarbæjar hefur verið í umræðunni síðustu daga. Hefur ágætur formaður Atvinnumálnefndar farið yfir átaksverkefni sem átti að vera til tveggja ára hér í fjölmiðlum. Ég undirritaður vil fyrir hönd Alsýnar ehf. rekja þetta ferli frá okkar bæjardyrum séð.


...
Þetta stöðuga áreiti sem Alsýn ehf. hefur orðið fyrir frá stofnun fyrirtækisins er mikið áhyggjuefni. Tekjur bæjarsjóðs fara minnkandi og ef fyrirtæki sem eru að hasla sér völl hér í bænum fá þessar móttökur af fulltrúum bæjarins þá er ekki fyrir hvern sem er að reka fyrirtæki hér í bæ. Er þetta það sem stefnt er að?
...
Oft var þörf á að vinna að atvinnumálum í Ísafjarðarbæ en nú er nauðsyn. Það er eindregin ósk Alsýnar ehf. að atvinnulíf hér á svæðinu öllu vaxi og dafni. Það er því von okkar að atvinnumálanefnd með formanninn í broddi fylkingar spýti í lófana og sýni hvað í þeim býr. Þeir hljóta að geta unnið betur og hraðar en Alsýn ehf....
Meira
17.03.2009

Ólína Þorvarðardóttir: Hvað er að óttast?

Ólína Þorvarðardóttir, þjóðfræðingur, skipar 2. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í NV-kjördæmi
Ólína Þorvarðardóttir, þjóðfræðingur, skipar 2. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í NV-kjördæmi

Svonefndur Píningsdómur sem lögtekinn var á Alþingi 1490 setti skorður við verslun Íslendinga og samskiptum þeirra við útlendinga.  Áður höfðu Englendingar haft leyfi til þess að versla við landsmenn og stunda hér fiskveiðar gegn því að greiða tolla og skatta.  Þetta lagðist illa í stórbændur landsins og útvegsmenn sem kærðu sig ekki um samkeppni um vinnuafl og verslun.  Afleiðing Píningsdóms varð fjögurra alda fátækt og einangrun landsins.  Nú, tæpum 520 árum síðar stöndum við Íslendingar frammi fyrir því hvort við viljum eiga opið markaðs- og viðskiptasamband við nágrannaríki okkar í Evrópu.  Líkt og í aðdraganda Píningsdóms árið 1490 kemur harðasta andstaðan gegn því frá íslenskum bændum og útvegsmönnum.

...
Meira
17.03.2009

Ásmundur Einar Daðason: Að loknu forvali VG

Ásmundur Einar Daðason, bóndi á Lambeyrum í Dalasýslu
Ásmundur Einar Daðason, bóndi á Lambeyrum í Dalasýslu
Fljótlega eftir að forvalið hófst hafði samband við mig einn ágætur frambjóðandi, sem ég ætla ekki að láta nafns getið frekar en Morgunblaðið og fleiri fjölmiðlar. Þessi frambjóðandi ræddi við mig um hversu alvarlegt það væri að Jón Bjarnason hefði kjörskrá en aðrir ekki. Ég kannaðist ekki við þessa umræðu og sagði að þetta væri að sjálfsögðu alvarlegar ásakanir ef þær
væru sannar. Gegnum árin hef ég m.a. starfað með Jóni Bjarnasyni, farið með honum á fundi o.fl. Hverjum þeim sem vinnur með Jóni verður strax ljóst að fáir hafa jafn yfirgripsmikla þekkingu á kjördæminu bæði þegar kemur að mönnum og málefnum. Þessi forgjöf hans á aðra keppinauta er staðreynd en það er líka staðreynd að þetta er eitthvað sem hann hefur byggt upp með eigin krafti og vinnu í þágu fólksins í kjördæminu....
Meira
Vefumsjón