Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
19.10.2011

Níels A. Ársćlsson: Ţađ skiptir ekki neinu máli

Tíminn líđur, segir Níels A. Ársćlsson
Tíminn líđur, segir Níels A. Ársćlsson
Það er ekki hægt að tala við fólk, hvorki stjórnarliða né stjórnarandstöðu. Það er ekkert mark á neinum takandi í stjórnsýslunni, hvorki minni spámönnum né embætismönnum ráðuneyta.

-Það skiptir ekki máli hversu mikið af gögnum eru lögð fram er benda sannarlega á hroðalega meðferð handhafa aflaheimilda á meðbræðrum sínum síðastliðinn áratug.


- Það skiptir ekki lengur neinu máli þótt íbúar Vestfjarða flýji undan kvótakerfinu hundruðum saman á hverju ári frá heimahögum sínum og verðlausum eignum.


- Það skiptir ekki máli hversu mikið og hversu lengi stjórnvöld brjóta mannréttindi á íbúum sjávarbyggðanna, því verður haldið áfram út yfir gröf og dauða með samþykki Alþingis og dómstólanna.

...
Meira
13.10.2011

Kristinn H. Gunnarsson: Sjálfsblekkingin um 2007

Kristinn H. Gunnarsson
Kristinn H. Gunnarsson
Sú sjálfsblekking er áberandi í þjóðfélaginu að hægt sé að strika út efnahagsleg áhrif hrunsins og hverfa aftur til lífskjara árins 2007.  Til marks um það eru kröfur um lækkun skulda, hækkun launa og bætur fyrir lækkun íbúðaverðs.  Staðreyndin er sú að lífskjörin á hátindi góðærisins fyrir hrun voru blekkingin ein, velmegun sem byggð var áralangri og ofsafenginni skuldasöfnun einstaklinga og fyrirtækja.  Það eru ekki til nein verðmæti í þjóðfélaginu til þess að standa undir fölsku lífskjörunum frá 2007....
Meira
11.10.2011

Ólína Ţorvarđardóttir: Sjávarútvegur í erlendri "eigu"?

Ólína Ţorvarđardóttir alţingismađur
Ólína Ţorvarđardóttir alţingismađur
Eignarhald erlendra aðila í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum er vissulega áhyggjuefni á meðan lagaramminn um sjálfa auðlindanýtinguna er ekki traustari en hann er. Ég bendi þó á að íslenskir eignaraðilar geta eins og sakir standa óhindrað flutt fisk úr landi á erlenda markaði þar sem fiskurinn skapar atvinnu og störf sem væri betra - eins og á stendur - að sköpuðust hér heima. Sjálft eignarhaldið skapar því ekki hættu, nema vegna þess að lagaramminn um nýtingu auðlindarinnar er ótryggur að öðru leyti....
Meira
03.10.2011

Kristinn H. Gunnarsson: Skuldafangelsi Íslandsbanka

Kristinn H. Gunnarsson
Kristinn H. Gunnarsson
Skuldafangelsið sem viðskiptabankarnir settu sjávarútveginn í varð aðeins til þess að 500 fjölskyldur velta sér upp úr auðæfum, sem aldrei áður í Íslandssögunni hafa verið jafnmikil á höndum jafnfárra.  Þetta er kerfið sem bankastjóri Íslandsbanka vill verja með kjafti og klóm.  Kerfi sem mun viðhalda skuldafangelsi í sjávarútvegi.  Þetta eru ráð þeirra sem eru lengst frá því að reka heilbrigt bankakerfi.  Nóg er komið af þeim óráðum....
Meira
30.09.2011

Lilja Rafney Magnúsdóttir og Ólína Ţorvarđardóttir: Betra fiskveiđistjórnunarkerfitil framtíđar

Ólína Ţorvarđardóttir
Ólína Ţorvarđardóttir
« 1 af 2 »

Sjávarútvegs og landbúnaðarnefnd Alþingis hefur verið með í umsagnarferli frumvarp til laga um stjórn fiskveiða sem sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra mælti fyrir á Alþingi s.l. vor.


Af umsögnum að dæma eru afar skiptar skoðanir um framtíðarskipan fiskveiðistjórnunar,fjölmargir umsagnaraðilar lýsa sig sammála þeim markmiðum sem sett eru fram í frumvarpinu en jafnframt kemur fram mikil andstaða við þær grundvallabreytingar sem lagðar eru til á kerfinu og framsetningu frumvarpsins í heild.


Það er því mat formanns og varaformanns sjávarútvegs og landbúnaðarnefndar Alþingis að taka verði frumvarpið til gagngerrar endurskoðunar áður en það verður lagt fram að nýju á 140. löggjafarþingi sem hefst 1.október n.k.

...
Meira
Vefumsjón