Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
06.11.2011

Kristinn H. Gunnarsson: 15 milljarđa króna gjöf ríkisins

Kristinn H. Gunnarsson
Kristinn H. Gunnarsson
Fyrir mismuninn má reka Landsspítalann í hálft ár. Það þyrfti ekki að skera niður starfsemi sjúkrahússins á Húsavík og Ísafirði niður fyrir sársaukamörk.  Það þyrfti ekki að loka annarri líknardeild Landsspítalans. Það þyrfti ekki að svíða kaupmáttinn af gamla fólkinu og örorkulífeyrisþegum með því að láta bætur ríkisins ekki hækka til jafns við verðlagsbreytingar.  Hvers vegna þarf að hlífa útvegsmönnum í myljandi gróðastarfsemi við því að taka sanngjarnan þátt í rekstri ríkissjóðs á erfiðum tímum?  Hvers vegna hlífir ríkisstjórnin frekar útvegsmönnum en öldruðum og sjúkum?  Svona eiga jafnaðarmenn ekki að gera....
Meira
02.11.2011

Hjálmar Sveinsson: Til varnar stjórnmálum

Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi
Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi
Það er afar vinsælt nú um stundir að úthúða stjórnmálamönnum og stjórnmálaflokkum. Fyrir því er reyndar löng hefð, en síðustu misserin hefur andúðin náð áður óþekktum hæðum. Það er eins og búið sé að gefa skotleyfi á stjórnmálamenn og þeir virðast frekar varnarlausir. Sá siður hefur til að mynda fest sig í sessi að hrópa ókvæðisorð að íslenskum alþingismönnum á leið sinni úr Dómkirkjunni í Alþingishúsið og grýta í þá eggjum.
...
Við höfum ekki góða reynslu af pólitískri lömunarveiki, þröngum flokkshagsmunum, hreppapólitík, málþófi, útúrsnúningum og lýðskrumi. Við þurfum ekki minni stjórnmál. Við þurfum meiri og betri stjórnmál....
Meira
24.10.2011

Ólína Ţorvarđardóttir: Forsendur liggja fyrir - vilji er allt sem ţarf

Ólína Ţorvarđardóttir alţingismađur
Ólína Ţorvarđardóttir alţingismađur
Grundvöllurinn liggur fyrir - annað er útfærsla.  Eins og fram hefur komið höfum við Lilja Rafney Magnúsdóttir, sem formaður og varaformaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar á síðasta þingi, lagt fram ítarlegar tillögur að breytingum á útfærslu frumvarpsins.  Í tillögum okkar felst mikil einföldun á kerfinu, m.a. frjálsar handfæraveiðar að uppfylltum skilyrðum, að pottunum verði fækkað að mun og leigupotturinn stækkaður verulega, að opnuð verði gátt milli nýtingarsamninga og leigupotts, að allur fiskur verði boðinn um innlendan markað og að skilið verði milli veiða og vinnslu.  Við leggjum áherslu á að úthlutun aflaheimilda eigi sér stað á grundvelli jafnræðis og atvinnufrelsis, að verðmyndum aflaheimilda sé eðlileg og leikreglur skýrar....
Meira
22.10.2011

Ásmundur Einar Dađason: Stjórn heilbrigđisstofnana heim í hérađ

Ásmundur Einar Dađason
Ásmundur Einar Dađason
Á undanförnum árum höfum við ítrekað séð stjórnvöld ráðast harkalega gegn heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Þessi aðför heldur áfram nái fjárlagafrumvarp næsta árs fram að ganga, en þar er boðaður áframhaldandi niðurskurður heilbrigðisstofnana víða um land. Íbúar hafa eðlilega miklar áhyggjur enda er heilbrigðisþjónusta, eins og allir vita, undirstaða hvers byggðalags. Íbúar hafa lítið um það að segja hvernig málum er háttað enda er ráðherra málaflokksins einvaldur í ákvörðunum sínum....
Meira
20.10.2011

Kristinn H. Gunnarsson: Ríkiđ gefur 9 milljarđa króna vegna makrílveiđa sumarsins

Kristinn H. Gunnarsson
Kristinn H. Gunnarsson
Stjórnvöld meðhöndla útgerðarmenn með silkihönskum á sama tíma og landsmenn bera byrðarnar af bankahruninu. Makrílveiðar sumarsins eru einn mesti gróðavegur sem um getur um árabil. Verðið er hátt og vinnslukostnaður fremur lítill þegar litið er til afurðaverðs erlendis. Ætla má að ríkissjóður hefði haft um 9 milljarða króna í tekjur fyrir veiðiréttinn, ef fylgt hefði verið þeim reglum sem það hefur markað sér. Þess í stað verður innheimt veiðigjald aðeins um 140 milljónir króna. Hvað veldur því að ríkissjóður telur sig geta fært útgerðarmönnum þessa sumargjöf í miðjum þrengingunum og sársaukafullum niðurskurði á viðkvæmum rekstri sjúkrastofnana?...
Meira
Vefumsjón