14.12.2011
Sigurđur Pétursson: Dýrafjarđargöng mega ekki bíđa!
Dýrafjarðargöng eru mikilvægasta samgöngubót á Vestfjörðum til að tengja saman þéttbýlisstaði og byggðir Ísafjarðarsýslu og Barðastrandarsýslu. Dýrafjarðargöng munu leysa af veginn um Hrafnseyrarheiði, einn hæsta og erfiðasta fjallveg á landinu, og stytta leiðina á milli Ísafjarðar og Patreksfjarðar um 27 kílómetra. Hrafnseyrarheiði er sú heiði sem yfirleitt fyrst verður ófær, af öllum heiðum Vestfjarða, og sú heiði sem síðast er opnuð á vorin. Hrafnseyrarheiði er versta hindrun í frekari samvinnu og samtengingu byggða á Vestfjörðum. - Vestfirðingar vilja Dýrafjarðargöng....
Meira
Meira
08.12.2011
Eyţór Jóvinsson: Vertu Vestfirđingur !
Vestfirðir standa á mikilvægum tímamótum. Sú hætta er raunveruleg að samfélagið fyrir vestan falli saman vegna fámennis og flótta fjármagns, og þá verður ekki aftur snúið. Að sama skapi eru allar líkur á því að hér byggist upp blómleg og öflugt samfélag, með smá hugafarsbreytingu og vakningu er allt hægt. Sendum ekki fjármagnið burt frá vestfjörðum, sendum framleiðslu, þjónustu og vörur frá okkur. Fáum fjármagnið til okkar og nýtum það í heimabyggð....
Meira
Meira
01.12.2011
Kristinn H. Gunnarsson: Ađ hirđa arđinn af veiđunum
En LÍÚ hefur þegar lagt línurnar. Vaxandi hluta kvótans veiða útvegsmenn ekki sjálfir heldur leigja öðrum á markaði gegn gjaldi til sín. Þá hirða umbjóðendur framkvæmdastjóra LÍÚ allan arð af veiðunum og telja það eðlilegt. Samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu var meðalleiguverðið á þorski síðasta fiskveiðiár 292 kr/kg. Af því greiddu útvegsmennirnir aðeins 6,44 kr til ríkisins. Afganginn hirtu þeir í eigin vasa án nokkurs útgerðarkostnaðar. Félagsmenn LÍÚ fengu 98% og ríkið 2% af arðinum. Samt finnst LÍÚ að ríkið fái of mikið í sinn hlut. Ríkinu vantar peninga nú sem aldrei fyrr til þess að standa undir þjónustu við börn, aldraða, sjúka og deyjandi. LÍÚ á að skammast sín fyrir það að bera blak af þessarri taumlausu græðgi....
Meira
Meira
28.11.2011
Sigurđur Pétursson: Viđ jólatréđ á Ţingeyri
Dýrfirðingar settu nýlega upp leikverk byggt á sögu ungmennafélagsins Höfrungs. Margir tóku þátt í verkinu og ég var einmitt samferða ungum Þingeyringi fyrir nokkrum dögum sem sagði mér frá sýningunni með sjálfsögðu stolti og ánægju. Þetta er það sem einkennir okkar samfélag og gerir það svo verðmætt: Samstaða og stolt yfir því sem við eigum saman.
Þetta stolt yfir sögu okkar og menningu þurfum við að varðveita og efla. Höfum það í huga um leið og við bjóðum aðventuna velkomna. Hugsum til þess að þrátt fyrir alla erfiðleika í þjóðfélaginu, þrátt fyrir erfiða stöðu í byggðum okkar hér vestra, þrátt fyrir skammdegið og skuggahliðar tilverunnar, er hátíð ljóssins í nánd og sólin hækkar á ný og birtan sigrar. Sama verður í þjóðfélaginu og hér í okkar fjörðum. Með bjartsýni og trú, samstöðu og dugnaði munum við sjá betri tíð og bjartari framtíð....
Meira
Þetta stolt yfir sögu okkar og menningu þurfum við að varðveita og efla. Höfum það í huga um leið og við bjóðum aðventuna velkomna. Hugsum til þess að þrátt fyrir alla erfiðleika í þjóðfélaginu, þrátt fyrir erfiða stöðu í byggðum okkar hér vestra, þrátt fyrir skammdegið og skuggahliðar tilverunnar, er hátíð ljóssins í nánd og sólin hækkar á ný og birtan sigrar. Sama verður í þjóðfélaginu og hér í okkar fjörðum. Með bjartsýni og trú, samstöðu og dugnaði munum við sjá betri tíð og bjartari framtíð....
Meira
26.11.2011
Kristinn H. Gunnarsson: Makríllinn - gull hafsins
Algert metár hefur verið í makrílútgerð í Noregi rétt eins og á Íslandi. Norrænir vefir tala um makrílinn sem gull hafsins. Öll met hafa verið slegin í Noregi. Bátar sem selt hafa afla sinn þar hafa fengið himinhátt verð fyrir aflann. Um 260 þúsund tonn af makríl hafa verið seld í gegnum uppboðs- og sölukerfi Norges sildesalgslag fyrir um 60 milljarða ísl króna. Meðalverðið er 242 kr/kg og hefur hækkað um 50% frá síðasta ári. Í september setti báturinn Selvåg Senior met og seldi 850 tonn af ferskum makríl fyrir liðlega 270 kr/kg....
Meira
Meira















