04.01.2012
Níels A. Ársćlsson: Launhelgi lyganna
Loðnan er undirstaða alls lífríkis sjávar við ísland. Ef loðnan er drepin hrynja margir fiskistofnar eins og við höfum illilega orðið vitni að. Baráttan um ætið bitnar síðan með ógnarþunga á öllum sjófugli við Ísland sem að endingu rústar tegundunum. Loðnuveiðar ætti einungis að leyfa á vetravertíð til manneldis og hroggnatöku. Ekki ætti að vera heimilt að veiða loðnu austan línu sem dregin verði réttvísandi í suður frá Dyrhóley og norðan línu sem dregin verði réttvísandi í vestur frá Garðskaga. LÍÚ væddar loðnuveiðar eru glæpur gagnvart öllu lífríki hafsins og fólkinu í sjávarbyggðunum.
...
Meira
...
Meira
03.01.2012
Ólína Ţorvarđardóttir: Sanngirni og jafnrćđi í sjávarútvegi
Þessa dagana stendur yfir endurskoðun á frumvarpi sjávarútvegsráðherra frá því í vor um fiskveiðistjórnun. Frumvarpið byggði á svokallaðri samningaleið sem hagsmunaaðilar í greininni höfðu lagt þunga áherslu á að lægi til grundvallar. Ráðherranefnd um fiskveiðistjórnun hefur nú málið til meðferðar - henni til aðstoðar eru fjórir stjórnarþingmenn - og er stefnt að því að leggja fram nýtt og betra frumvarp fljótlega á vorþingi.
Sanngjarnar leikreglur, arðsemi, sjálfbærni en ekki síst þjóðhagsleg hagkvæmni hljóta að vera leiðarljósið í þeirri vinnu sem fram undan er. Það er brýnt fyrir greinina í heild sinni en ekki síst þau sjávarútvegsfyrirtæki sem líða fyrir hráefnisskort og takmarkað aðgengi að aflaheimildum í núverandi kerfi. Almennar opnar leikreglur geta skilið milli feigs og ófeigs fyrir framtíðarmöguleika slíkra fyrirtækja og því er ekki eftir neinu að bíða....
Meira
Sanngjarnar leikreglur, arðsemi, sjálfbærni en ekki síst þjóðhagsleg hagkvæmni hljóta að vera leiðarljósið í þeirri vinnu sem fram undan er. Það er brýnt fyrir greinina í heild sinni en ekki síst þau sjávarútvegsfyrirtæki sem líða fyrir hráefnisskort og takmarkað aðgengi að aflaheimildum í núverandi kerfi. Almennar opnar leikreglur geta skilið milli feigs og ófeigs fyrir framtíðarmöguleika slíkra fyrirtækja og því er ekki eftir neinu að bíða....
Meira
27.12.2011
Sigurđur Pétursson: Ţau létu lífiđ fyrir málstađ mannúđar og réttlćtis
Í sumar bárust okkur ógnvænlegar fréttir frá Noregi. Bræðra- og systraþjóð okkar upplifði hryllilegt fjöldamorð. Sumarhátíð ungra jafnaðarmanna í Noregi varð fyrir árás þar sem tugir saklausra ungmenna voru myrt með köldu blóði. Vegna þess að þau tóku afstöðu. Vegna þess að þau tilheyrðu hreyfingu sem berst fyrir samfélagi jafnréttis og virðingar. Vegna þess að þau voru jafnaðarmenn. Morðárásin á Útey 22. júlí í sumar er áminning um að baráttan fyrir frelsi, jafnrétti og bræðralagi, grundvallarhugmyndum jafnaðarstefnunnar, er dauðans alvara....
Meira
Meira
20.12.2011
Ólína Ţorvarđardóttir: Árnađ heilla: Pétur Sigurđsson, verkalýđsfrömuđur
Tengdafaðir minn, Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðusambands Vestfjarða, varð áttræður í gær. Hann á að baki merkan feril sem forystumaður í íslenskri verkalýðshreyfingu í um hálfrar aldar skeið. Hann leiddi „síðasta stóra verkfallið" sem svo hefur verið nefnt, verkfallið á Vestfjörðum 1997 sem stóð í sjö vikur og lyktaði með svokölluðum „Vestfjarðasamningum". En Pétur hefur einnig markað spor í íþróttahreyfinguna sem formaður knattspyrnufélagsins Vestra í tvo áratugi....
Meira
Meira
18.12.2011
Níels A. Ársćlsson: Er brottkast á síld orsökin fyrir sýkingu í stofninum?
Það læðist að manni sá grunur að ástæðan fyrir sýkingu síldarstofnsins sé sá gengdarlausi sóðaskapur sem viðgengist hefur á síldarmiðunum síðustu ár. Risavaxin flottrollsskip með fullvinnslu um borð hafa verið að ryðja sér til rúms með aukinni græðgisvæðingu í sjávarútvegi. Undanfarin ár hefur síldinni verið skóflað upp í stórum stíl upp í fjöru við Grundarfjörð og víða. Mörg skip hafa fengið mun meira magn en þau hafa ráðið við að taka um borð og oft á tíðum hefur mörg hundruð tonnum verið slept dauðum niður á veiðislóðina....
Meira
Meira















