23.01.2012
Ólína Ţorvarđardóttir: Stađgöngumćđrun í velgjörđarskyni
Ég er sjálf fimm barna móðir, hef átt því láni að fagna að hafa aldrei staðið frammi fyrir neinum hindrunum varðandi það að ganga með og fæða barn. Ég er forsjóninni þakklát fyrir það lán. Þess vegna vil ég veita þessu máli framgang. Það vil ég gera á siðferðislega ábyrgum forsendum. Ég treysti þingheimi til þess og hef því góða von um að þetta mál fái ábyrga meðferð.
Meira
Grunnforsenda minnar afstöðu er sú að með því að samþykkja að hafin verði vönduð vinna við undirbúning frumvarps um staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni tökum við skýra afstöðu gegn staðgöngumæðrun í hagnaðarskyni.
...Meira
18.01.2012
Lilja Rafney Magnúsdóttir: Góđur árangur
Breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu eru mér hjartans mál. Ég hef horft upp á það hvernig það hefur leikið margar byggðir grátt og hvernig gallar þess og óréttlæti birtast í sinni tærustu mynd á því landsvæði sem ég þekki best til og í mörgum sjávarbyggðum hringinn í kringum landið. Í núverandi kerfi hafa byggst upp gífurlegir hagsmunir valdablokka í landinu sem gefa sitt ekki eftir baráttulaust. Heilu byggðarlögin og margar atvinnugreinar eiga allt sitt undir velvilja stórra kvótahafa og fjármálastofnana. Þessar valdablokkir hafa beitt ótrúlegum hræðsluáróðri gegn breytingum á kerfinu og beita miklum þrýstingi á stjórnvöld að sem minnstu verði breytt. Hræðslan og meðvirknin við að styggja ekki þá stóru og sterku er víða undirliggjandi. Meirihluti þjóðarinnar hefur talað í kosningum og vill breyta kerfinu en færri þora að koma fram og tala fyrir því opinberlega því það gæti haft ófyriséðar afleiðingar fyrir þá....
Meira
Meira
13.01.2012
Jóna Benediktsdóttir: Hvađ er mikilvćgast ađ kunna í lífinu?
Hvað er mikilvægast að kunna í lífinu? Þegar stórt er spurt verður oft fátt um svör. Þegar kemur að uppeldi barnanna sem maður ber ábyrgð á verður maður samt að taka afstöðu, þar gengur ekki að láta reka á reiðanum. Við foreldrar, höfum oft háleitar hugmyndir um framtíð barnanna okkar og erum oftast full bjartsýni og sjáum fyrir okkur menntun og góða daga. En því miður verður það ekki alltaf raunin þegar upp er staðið.
... Fyrir mér er mikilvægast að börn kunni að uppfylla þarfir sínar á jákvæðan hátt án þess að troða á þörfum annarra. Að þau kunni að haga sér þannig að þau geti látið gott af sér leiða og misbjóði ekki samferðamönnum sínum. Þetta tel ég að við eigum að sameinast um að kenna þeim. Hvað finnst þér mikilvægast?...
Meira
... Fyrir mér er mikilvægast að börn kunni að uppfylla þarfir sínar á jákvæðan hátt án þess að troða á þörfum annarra. Að þau kunni að haga sér þannig að þau geti látið gott af sér leiða og misbjóði ekki samferðamönnum sínum. Þetta tel ég að við eigum að sameinast um að kenna þeim. Hvað finnst þér mikilvægast?...
Meira
10.01.2012
Ólína Ţorvarđardóttir: Kadmium mengun og upplýsingagjöf
Af þessari ástæðu lagði ég fram á síðasta vorþingi, og aftur nú á haustþingi, frumvarp til laga um herta upplýsingaskyldu stjórnvalda í umhverfismálum. Lagðar eru til þó nokkrar breytingar á þremur greinum laga nr. 23/2006, um upplýsingarétt um umhverfismál . Lagt er til að við 10. gr. laganna bætist ný málsgrein sem skyldar stjórnvöld afdráttarlaust til þess að hafa frumkvæði að upplýsingagjöf sé ástæða til að ætla að veruleg frávik vegna mengandi efna í umhverfi geti haft í för með sér hættu eða skaðleg áhrif á umhverfi eða heilsu fólks eða dýra. Allar miða breytingarnar að því að tryggja rétt almennings til þess að fá og frumkvæðisskyldu stjórnvalda til þess að veita upplýsingar um umhverfismál....
Meira
Meira
09.01.2012
Níels A. Ársćlsson: Svartfugl
Tugþúsundum svartfugla sem flækjast í fiskinetum er hent á hverju ári, þar sem ekki er heimilt samkvæmt lögum að selja fugl sem drepst í netum. Svartfugl flækist í fiskinetum í sjó allt árið en aðallega snemma á veturna og á vorin þegar hann kemur nær landi til varps. Svartfugl flækist í og kafnar í fiskinetum sem lögð eru á veiðislóð, gjarnan þar sem sjómenn verða varir við síli eða loðnu, enda líklegt að helstu nytjafiskar, t.d. þorskur, sæki í slíkt æti. Svartfuglinn sækir hinsvegar einnig í sílið og flækist þar af leiðandi í netunum, jafnvel þó að þau séu lögð mjög djúpt....
Meira
Meira















