17.05.2012
Jóna Benediktsdóttir: Verđur ţá enginn fiskur veiddur meir ?
Sú ríkisstjórn sem nú situr fékk umboð frá þjóðinni til að gera breytingar á kerfinu við síðustu kosningar. Það umboð fékk hún meðal annars vegna langvarandi óánægju íbúa víðsvegar um landið með það hvernig farið hefur verið með þessa auðlind, sem samkvæmt stjórnarskrá er sameign þjóðarinnar. Það er ekkert launungarmál að gríðarlegir fjármunir hafa verið teknir út úr greininni og notaðir í allskyns brask. Það hafa handhafar veiðiheimildanna getað gert vegna þess að lögin hafa heimilað þeim það. Þeir veðsettu veiðiheimildir og keyptu hlutbréf í bönkum og öðrum fyrirtækjum. Stundum þurfti ekki einu sinn veð til, menn gátu bara ,,stímað" út með 25 milljarða út á sitt góða nafn eingöngu. Eftir sitja stórskuldug fyrirtækin sem mörg hver eru varla rekstarhæf og skuldirnar deilast á þjóðina. Auðvitað er hún ekki sátt....
Meira
Meira
16.05.2012
Lýđur Árnason: Fellur ríkisstjórnin vegna málţófs?
Stjórnarandstaðan stefnir að því að kjafta nýja stjórnarskrá stjórnlagaráðs í kaf á næstu dögum og endurtaka leikinn frá páskum. Komist stjórnarskráin ekki í þjóðaratkvæði í haust er ljóst að lítið stendur eftir langan feril sem byrjaði með þjóðfundinum 2010. Hræðsla sumra þingmanna við þjóðardóm má skýra út frá þeim kerfisbreytingum sem hann gæti haft í för með sér. Þeir sjá illa fyrir sér nýja samfélagsuppbyggingu þar sem núliggjandi valdastoðum er raskað. Því er reynt að bægja frá nýjum vindum.
Komist minnihluti þingsins upp með málþóf öðru sinni spái ég falli þessarar ríkisstjórnar enda ónýt stjórn sem engu kemur áleiðis. Hvet landsmenn að fylgjast með framgangi þessa máls og sérlega málþófinu því í því kristallast niðurlæging þessarar áðurvirtu stofnunar.
Lýður Árnason,læknir og liðsmaður Dögunar.
Komist minnihluti þingsins upp með málþóf öðru sinni spái ég falli þessarar ríkisstjórnar enda ónýt stjórn sem engu kemur áleiðis. Hvet landsmenn að fylgjast með framgangi þessa máls og sérlega málþófinu því í því kristallast niðurlæging þessarar áðurvirtu stofnunar.
Lýður Árnason,læknir og liðsmaður Dögunar.
14.05.2012
Guđmundur Andri Thorsson: Ţađ gefur á bátinn...
Þetta er ekki spurning um landsbyggð og Reykjavík - enda búa kvótaeigendur unnvörpum fyrir sunnan og Reykjavík er stærsta höfn landsins, svo að rangt er að tala um landsbyggðarskatt. Unnendur núverandi kerfis - ekki síst þingmenn Vestfjarða - þurfa að svara því hvers vegna kvótinn hefur í æ ríkari mæli sogast suður til Reykjavíkur; hvers vegna sífellt erfiðara verður að halda uppi lágmarksþjónustu í dreifðum byggðum landsins - hvers vegna Guggan er ekki lengur gul og hvað þá gerð út frá Ísafirði....
Meira
Meira
08.05.2012
Ólína Ţorvarđardóttir: Hvađ skal međ "stóra kvótamáliđ"?
Mikið er í húfi að vel takist til við umfjöllun frumvarpanna tveggja sem Alþingi hefur nú til meðferðar og kölluð eru „kvótafrumvörpin". Annað lýtur að stjórn fiskveiða (kvótakerfinu) en hitt að gjaldtökunni fyrir nýtingu auðlindarinnar (veiðigjaldinu). Bæði hafa þau vakið hörð viðbrögð, og ekki er allt frómt sem sagt hefur verið um þau til þessa. Ég vil því gera nánari grein fyrir meginþáttum frumvarpanna og velta upp þeim breytingum á þeim sem ég tel að yrðu til bóta.
Meira
Lítum fyrst á frumvarp um stjórn fiskveiða. Verði það að lögum mun eftirfarandi gerast:
Meira
02.05.2012
Herdís Hubner: Sá sem vill finnur leiđ - sá sem vill ekki, finnur afsökun
Hver einstaklingur verður enn dýrmætari fyrir samfélagið þegar fólkinu fækkar. Ég vil þess vegna nota þetta tækifæri og þakka öllu því frábæra fólki sem vinnur að því að halda uppi menningarlífinu í þessum bæ, sem er þrekvirki og ómetanlegt fyrir samfélagið. Húrra fyrir ykkur, það mega allir taka til sín sem eiga það og við vitum öll hver þið eruð.
...
Meira
...
Það verður sjálfsagt enginn heimsendir þótt byggð leggist af á Vestfjörðum. Stærri borgir en Ísafjörður og nærliggjandi þorp hafa farið í eyði án þess að heimurinn hætti að snúast. En ég verð að segja að mér þætti veröldin allmiklu fátækari án þeirra.
- Pistil þennan flutti Herdís Hubner grunnskólakennari á baráttusamkomu verkalýðsfélaganna á Ísafirði 1. maí.
...Meira















