28.02.2010
Þakkir til stuðningsmanna Í - listans
Fyrir hönd frambjóðenda í prófkjöri Í - listans í Ísafjarðarbæ vil ég þakka öllum þeim sem þátt tóku í kjörinu og lögðu sitt að mörkum til að mynda samstæðan lista með víða skírskotun. Öll framkvæmd prófkjörsins var til fyrirmyndar og þökk sé kjörstjórn og öðrum þeim sem lögðu hönd á plóginn við að láta allt ganga upp. Við frambjóðendur þökkum góðar undirtektir og jákvæð viðbrögð allsstaðar í sveitarfélaginu og heitum því að vinna saman sem einn maður að sigri Í - listans í kosningunum í vor.
Aðstandendur Í - listans ákváðu að bjóða upp á opið persónukjör, þannig að stuðningsmenn listans gætu alfarið raðað upp þeim frambjóðendum sem þeir töldu eiga heima í efstu sætum. Barátta frambjóðenda var háð á jafnréttisgrunni, með háttvísi og virðingu fyrir mönnum og málefnum. Við getum því verið stolt af árangrinum. Á fimmta hundrað kjósenda tók þátt og má það teljast góður árangur. Uppskera einstakra frambjóðenda var í heild mjög góð, bæði þeirra sem reynslu hafa, og ekki síður hinna sem komu nýir til leiks. Sérstaklega er ánægjulegt að sjá hve mikið jafnræði er með körlum og konum í kjörinu og ljóst að stuðningsmenn Í - listans hafa jafnrétti í heiðri við sitt val.
Fyrir mitt leyti, þakka ég fyrir þann góða stuðning sem ég fékk til að leiða lista félagshyggjuafla og frjálslyndis hér í Ísafjarðarbæ við næstu kosningar. Sá stuðningur er mikilvægur í þeirri ströngu baráttu sem framundan er gegn sterkum öflum, sem sýnt hafa það fyrr og síðar að þeim er fátt heilagt í viðleitni sinni til að halda völdum. Ekki síður mikilvægt hefur verið að finna samheldni og stuðning í hópi hæfra frambjóðenda. Nú er þessi hríð að baki og einsog í Valhöll forðum, standa allir upp að morgni albúnir til næstu átaka. Verkefnið framundan krefst þess og ég hlakka til að taka þátt í þeirri baráttu, í hópi jafningja.
Deila á Facebook

Skrifaðu athugasemd:
ATH. IP talan þín er 38.107.179.210 og er skráð með athugasemdinni.