Steinþór Bragason: Fjölgun starfa í Ísafjarðarbæ - framhald
Samstarf Alsýnar ehf. og Atvinnumálanefndar Ísafjarðarbæjar hefur verið í umræðunni síðustu daga. Hefur ágætur formaður Atvinnumálnefndar farið yfir átaksverkefni sem átti að vera til tveggja ára hér í fjölmiðlum. Ég undirritaður vil fyrir hönd Alsýnar ehf. rekja þetta ferli frá okkar bæjardyrum séð.
Blikur á lofti
Seinni hluta ársins 2007 var ákveðið að hefja átaksverkefni í atvinnumálum í Ísafjarðarbæ. Verkefnið hafði það að markmiði að fjölga störfum um 50 í Ísafjarðarbæ á tveimur árum. Gafst öllum kostur að sækja um þetta verkefni, bæði einstaklingum og verktökum. Raunin varð sú að þrír aðilar sóttu stafið, en þeir voru samkvæmt atvinnumálnefndarfundi númer 76:
a) Shiran Þórisson viðskiptafræðingur í samstarfi við Guðmund Kjartansson lögg. esk. og Björn Jóhannesson hrl. f.h. óstofnaðs ráðgjafafyrirtækis.
b) Ingi Þór Ágústsson hjúkrunarfræðingur og nemi í MPA námi í stjórnsýslu í samstarfi við ráðgjafafyrirtækið Capacent.
c) Ólafur Arnar Ingólfsson og Steinþór Bragason í samstarfi við Einar Ársæl Hrafnsson og Sigmund R. Guðnason. Menntun og reynsla er á sviði viðskipta-, sjávarútvegs-, umhverfis- og tæknimála. Stofnað yrði einkahlutafélag um reksturinn.
Það var síðan ákvörðun Atvinnumálnefndar að ganga til samninga við ráðgjafarfyrirtækið Alsýn ehf. Þegar farið var af stað með þetta verkefni lagði Alsýn fram áætlun um hvernig skyldi unnið að þessum samningi. Til að halda í fólksfækkun sem orðið hefur síðustu árin taldi Alsýn að stefna bæri að 100 störfum á tveimur árum. Það er það sem þurfti til að halda núll-línunni, (sjá mynd 1 sem var lögð fram fyrir Atvinnumálanefnd í upphafi samningsins). Einnig var gerð aðgerðaáætlun sem sýnir hvernig átti að ná þessum 100 störfum sem stefnt var að, (sjá mynd 2). Eins og sjá má var gert ráð fyrir starfaaukningunni í þessu verkefni á seinnihluta annars ársins, því ¾ hluti verkefnisins var undirbúningur sem þurfti að framkvæma áður en lokahöndin yrði lögð á verkið. Það skal einnig tekið fram að þegar Alsýnarmenn gengu til samninga við Ísafjarðarbæ var miðað við 40 stunda vinnuviku í samningnum en samkvæmt beiðni formanns Atvinnumálanefndar og bæjarstjóra voru þessir tímar skornir niður um 25%.
Fyrsti fundur Atvinnumálanefndar var hreint kostulegur. Einn af þeim umsækjendunum sem sóttist eftir þessu verkefni var orðinn starfsmaður Atvinnuþróunarfélagsins, og var ritari Atvinnumálanefndar. Þetta var fyrsta ankerið sem lagt var á Alsýn í þessu verkefni, og er með öllu óeðlilegt, sem sýndi sig um mitt sumar þegar Alsýnarmenn þurftu að víkja ritaranum af fundi vegna óeðlilegs ásóknar í sömu störf og Alsýn var að vinna að.
Um miðjan júní 2008 óska bæjarfulltrúarnir Svanlaug Guðnadóttir og Ingi Þór Ágústsson, sem var þriðji umsækjandinn um átaksverkefnið, eftir skýrslum Alsýnar. Var þessum bæjarfulltrúum sent svar um hæl og boðið að líta á skýrslur sem lagðar höfðu verið fyrir Atvinnumálnefnd. Þessir bæjarfulltrúar eru ekki enn komnir til að líta á skýrslurnar. Í þessu tilfelli átti auðvitað að leita til formanns Atvinnumálanefndar til að fá svör við þessum upplýsingum, hann hafði yfir skýrslunum að ráða.
En ásakanir á hendur Alsýnar ehf. voru ekki yfirstaðnar. Á bæjarstjórnarfundi 8.01.2009 bar bæjarstjórinn fram þær staðhæfingar að Alsýn ehf. hafi aldrei sótt um leyfi fyrir flugi til Grænlands sumarið 2008. Hérna er um algjörlega tilefnislausa ásökun að ræða sem er ekki byggð á neinum rökum. Aldrei kom hann að máli við okkur til að spyrjast fyrir um þetta, og má það undrun sæta. Hvet ég því þá sem lesa þetta að hlusta á eftirfarandi fund sem er hægt að sækja á: http://www.isafjordur.is/isafjordur/fundargerdir/nanar/?ec_item_0_id=5896c2c8-b8ef-4bda-b14f-e9c05619cd&showxml=true
Og hlusta á tímabilið 1:53 - 2:15 mín og 3:53 - 4:20. Skjöl þessu til staðfestingar liggja frammi á skrifstofu Alsýnar að Aðalstræti 17 - 19.
Þetta stöðuga áreiti sem Alsýn ehf. hefur orðið fyrir frá stofnun fyrirtækisins er mikið áhyggjuefni. Tekjur bæjarsjóðs fara minnkandi og ef fyrirtæki sem eru að hasla sér völl hér í bænum fá þessar móttökur af fulltrúum bæjarins þá er ekki fyrir hvern sem er að reka fyrirtæki hér í bæ. Er þetta það sem stefnt er að?
Ef við lítum á þróun fólksfjölda hér í Ísafjarðarbæ frá árunum 1998 - 2009 þá hefur okkur fækkað um 463 á þessu tímabili meðan Íslendingum hefur fjölgað um 46.987 á þessu sama tímabili. En það er ljós í myrkrinu því á þessu ári sem Alsýn ehf. hefur verið að störfum þá hefur fjölgað á Ísafirði, Hnífsdal, Suðureyri og í sveitum Dýrafjarðar.
Endurskoðun samningsins
Í samningi Ísafjarðarbæjar við Alsýn ehf. var ákvæði í 2. gr. um að hvor aðili fyrir sig gæti óskað eftir endurskoðun 17. ágúst 2008. Alsýn barst bréf þess efnis 19.08.2008 að óskað væri eftir endurskoðun á samningnum. Eins og sjá má var endurskoðunartíminn útrunninn, en hægt var að nýta uppsagnarákvæðið sem var 3 mánuðir. Í bréfi þessu er ástæða endurskoðunar samningsins sögð sú að störf hafi ekki komið í réttu hlutfalli við samninginn. Ég bendi aftur á mynd 2 þar sem okkar markmið voru mjög skýr frá upphafi. Hin ástæða endurskoðunarinnar var sú að Alsýn væri að vinna að sömu verkefnum og Atvinnuþróunarfélagið. Þetta kom okkur Alsýnarmönnum alveg í opna skjöldu. Eins og sjá má í bókunum Atvinnumálnefndar þá voru einn eða jafnvel 2 áheyrnarfulltrúar frá Atvinnuþróunarfélaginu þegar málefni Alsýnar voru rædd, en hins vegar fékk Alsýn aldrei að vera viðstatt þegar málefni Atvinnuþróunarfélagins voru rædd. Þetta teljum við óeðlileg vinnubrögð. Enda komu upp árekstrar þar sem fulltrúi Alsýnar lét víkja fulltrúa Atvinnuþróunarfélagins af fundi vegna þess að Atvinnuþróunarfélagið var farið að ásælast verkefni Alsýnar. Liggur þetta bréf frammi á skrifstofu Alsýnar fyrir þá sem vilja á líta.
Á næsta fundi eftir ósk um endurskoðun lagði fulltrúi Alsýnar fram þá beiðni að fá að vita hver væri ástæða uppsagnarinnar og hvað þyrfti þá að laga. Engin svör fengust frá nefndarmönnum þannig að Alsýnarmenn álitu að ánægja hlyti að vera með störf Alsýnar. Enda er hvergi að finna í bókunum atvinnumálanefndar óánægju með störf Alsýnar. Sá eini sem er víttur fyrir óeðlileg vinnubrögð er bæjarstóri Ísafjarðarbæjar, (sjá fund no:88).
Í grein Kristjáns kemur einnig fram að Alsýn hafi verið að vinna að of mörgum og of stórum málum. Það kemur hvergi fram í samningi Ísafjarðarbæjar og Alsýnar að um einhvern hámarksfjölda verkefna sé að ræða, hvað þá stærð. Þvert á móti er það tekið fram í samningnum að "grípa allar hugmyndir á lofti og landa þeim eins fljótt og auðið er". Ég held að þetta hljóti að vera í fyrsta skipti í sögu lýðveldisins þar sem verktaki er ávíttur fyrir að vera of framtakssamur. Við höfum kannski eitthvað misskilið samninginn varðandi afkastagetuna. Okkar markmið var að Ísafjarðarbær fengi sem mest fyrir peninginn með að ráða okkur í vinnu. Þeir sem áhuga hafa á að skoða samninginn við Ísafjarðarbæ er velkomið að skoða hann á skrifstofu Alsýnar.
Að beiðni Halldórs Halldórssonar bæjarstjóra þá skyldu Kristján G. Jóhannsson formaður atvinnumálnefndar og Guðmundur Þór Kristjánsson nefndarmaður í atvinnumálefnd sjá um endurskoðunina. Endurskoðunin kom okkur Alsýnarmönnum alveg í opna skjöldu þannig að við sendum nefndarmönnum til baka hvað fór fram á fundinum. Það sem fór fram var eftirfarandi samkvæmt tölvusamskiptum okkar og formans atvinnumálanefndar:
Ágæta Atvinnumálanefnd.
Varðandi tölvupóst 10.09.2008.
Í okkar viðræðum kom fram að við erum að vinna í of mörgum og of stórum verkefnum. Til að koma til móts við þessar ábendingar skipti undirritaður verkefnum sem við höfum verið að vinna að niður í þrjá flokka sem voru lagðir fyrir seinasta fund. Það kom einnig til tals að við hjá Alsýn værum að vinna of marga tíma fyrir einstaka aðila. Þetta er hinn mesti misskilningur. Mesta vinna Alsýnar er að sækja tækifæri og mannafla til starfa í Ísafjarðarbæ. Því eins og nefndarmenn vita þá er atvinnuþróunarfélagið aðallega í ráðgjafahlutverkinu og er fólki frjálst að leita til þeirra. Þeir aðilar sem fá ráðgjöf hjá okkur eru þeir sem þurfa sérþekkingu vegna tæknilegra útfærslna á verkefnum þeirra. Þessir aðilar telja sig ekki fá þessa þjónustu annarsstaðar.
Eins og tillaga nefndarfulltrúanna hljómar á Alsýn að breytast í "Atvinnuþróunarfélag II". Er þörf á því?
Þið talið um að samkomulag náist ekki. Í mínum huga eru samningaviðræður það þegar tveir eða fleiri aðilar koma sér saman um niðurstöðu. Í þessu tilviki er ákvörðunin einhliða og mér boðið að svara já eða nei. Ef ætlast er til þess að svarað sé með móttilboði væri gáfulegt að senda eða afhenda Alsýn formlega tillögu að breytingu samnings og á hvaða forsendu í stað þess að vera með orðaskak.
Það er talað um lélegan árangur Alsýnar samkvæmt bréfi frá Halldóri Halldórssyni að fjöldi stafa kæmi ekki í réttu hlutfalli við markmið samningsins. Hvernig væri að bera saman árangur Alsýnar sem fór af stað í þetta verkefni með tvær hendur tómar og árangur Vestfjarðaskýrslunnar þar sem verkefni og störf voru ákveðin fyrirfram.
Á þessum áðurnefndu viðræðufundum hefur undirritaður reynt að koma til móts við fulltrúa atvinnumálanefndar á ýmsa vegu, t.d. árangurstengingu greiðslna, óskað var eftir hugmyndum fulltrúanna um framkvæmd verkefna, óskað var eftir hugmyndum að verkefnagreiningu það er hvað réði vali verkefna. Nefndarmenn höfðu engar sérstakar óskir sem hægt var að nota sem grunn við samningaviðræður, að því undaskildu að við værum að vinna að of mörgum og stórum verkefnum og að þessi svokölluðu stóru verkefni ættu að flytjast hálfunnin til Atvinnuþróunarfélagsins eða vera sérverkefni og í því tilviki unnin samkvæmt hvaða skilyrðum.
Ef vilji er til að halda þessu verkefni áfram þá væri gott að fá skriflegt tilboð sem hægt er að svara skriflega.
Virðingarfyllst,
Steinþór Bragason.
Mótsvar Kristján G Jóhannssonar formanns Atvinnumálanefndar
Sæll Steinþór. Ég sé nú ekki mikið nýtt í þessu, en sendi hér með skriflega hugmyndirnar sem hafa verið í gangi frá okkur. Þetta verð ég að sjálfsögðu að setja með fyrirvara um að nefndin og bæjarráð samþykki. Við höfum saknað þess að fá ekki frá þér einhverjar hugmyndir um hvernig við getum lent þessum viðræðum og við höfum ítrekað sagt að það er ekki vilji til að halda áfram óbreytt. Meðfylgjandi er skriflega hugmynd, en að öðru leyti hefur ekkert breyst frá tölvupósti okkar í fyrradag.
Með bestu kveðjum f.h.
Atvinnumálanefndar Ísafjarðarbæjar, Kristján G. Jóhannsson
Efni: Endurskoðun samnings milli Alsýnar og Ísafjarðarbæjar
Í framhaldi af samningaviðræðum vegna endurskoðunar fyrrgreinds samnings leggjum við fram eftirfarandi hugmyndir.
Gerður verði nýr samningur milli aðila til 9 mánaða, þ.e. frá 1. sept. 2008 til loka maí árið 2009.
Alsýn velur 15-20 verkefni, sem það vill vinna að og talið er að geti fjölgað störfum í Ísafjarðarbæ.
Greiðsla Ísafjarðarbæjar verði kr. 350.000.- pr mánuð og ferðakostnaður verði að hámarki kr. 25.000.- pr. mán og gert ráð fyrir ferðakostnaði innanbæjar eingöngu.
Þessar hugmyndir eru settar fram með fyrirvara um samþykki bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Eins og sjá má getur Alsýn engan vegin samþykkt þetta mótframboð Atvinnumálanefndar. Á þessum tímapunkti voru þrír starfsmenn að vinna hjá fyrirtækinu umfram eigendur. 350.000 kr duga enganvegin fyrir launum þriggja stafsmanna. Að minnsta kosti komust við ekki upp með það. Ég get ekki sagt til um önnur fyrirtæki.
Alsýn lagði einnig fram nýjan samning. En engin svör fengust frá Atvinnumálnefnd.
Greiðslur til Alsýnar eru engin launungamál. Samkvæmt fundi Atvinnumálanefndar 8.11.2007 no:78 er greiðslurnar borðliggjandi. http://www.isafjordur.is/isafjordur/fundargerdir/nanar/?ec_item_0_id=110995b3-9638-411c-b1fb-6e6e35af8abe&showxml=true Það skal einnig tekið fram að það þarf tvo til við samningsgerð. Samningurinn sem undirritaður var við Alsýn var gerður með vitorði Ísafjarðarbæjar, því gat bærinn alfarið ráðið því hvort hann gengi til samninga við Alsýn eður ei.
Kristján talar um stórar skuldbindingar Bæjarsjóðs varðandi samning bæjarins við Alsýn. Samkvæmt bæjarráðsfundi no:556, 8.01.2008 er Ísafjarðarbæ úthlutað fjármagni að upphæð kr. 15.427.035 - frá félagsmálaráðuneyti vegna tímabundins samdráttar í aflamarki þorsks. Bæjarráð vísar þessu erindi til Atvinnumálanefndar. http://www.isafjordur.is/isafjordur/fundargerdir/nanar/?ec_item_0_id=da66fdd0-8ef1-4312-b56b-8e3b5d053ebc&showxml=true . Þetta erindi er tekið upp á Atvinnumálafundi no:80, http://www.isafjordur.is/isafjordur/fundargerdir/nanar/?ec_item_0_id=a107396f-dca2-4701-af2d-8150a2b9fc27&showxml=true . Þar kemur fram að þetta fjármagn skuli notað til að fjármagna samning Ísafjarðarbæjar við Alsýn.
Við endurskoðun samningsins var endurskoðendum boðið að skoða þá vinnu sem Alsýn hefur lagt til við samninginn. Allir tímar sem Alsýn hefur lagt til við samning Ísafjarðarbæjar eru skráðir. Samkvæmt okkar niðurtöðum er Alsýn að krefjast kr. 3.082 fyrir hvern unninn tíma fyrir Ísafjarðarbæ, ferðastyrkurinn er kr. 49 pr. km. Það væri gaman að vita hvað Ísafjarðarbær er að rukka nágrannasveitafélögin fyrir hvern unninn tíma og ekinn km.
Það er ekkert skrítið við það að fylgjast með því hvað bærinn er að fá fyrir peningana, en þá á líka að gæta hlutleysis og birta alla samninga sem gerðir eru við þjónustufyrirtæki en ekki bara suma og smjatta svo á þeim. Það eru fleiri að vinna að atvinnumálum og alveg sjálfsagt að bæjarbúar fái líka að fylgjast með þeim, eða hvað? Alsýn þarf að fá greitt fyrir sína vinnu ekkert síður en aðrir. Sem dæmi gæti atvinnumálanefnd upplýst um greiðslur til Atvinnuþróunarfélagsins hf., Upplýsingamiðstöðvarinnar, Markaðsstofunnar og Fjórðungssambands Vestfjarða. Þetta þýðir ekki að eitthvað sé athugavert við starfsemi þessara fyrirtækja, en jafnt skal yfir alla ganga ef sanngjarnt á að vera því eins og bæjaryfirvöld segja þá eiga bæjarbúar rétt á að vita hvað bæjarsjóður fær fyrir peninginn. Ég skora því á bæjaryfirvöld að birta ALLA samninga sem gerðir hafa verið við Ísafjarðarbæ líkt og gert var við samning Alsýnar til að gæta hlutleysis.
Lokaskýrsla Alsýnar
Það er rétt að Alsýn óskaði eftir fresti til að skila uppgjörsskýrslu Alsýnar. Ástæðan fyrir því var sú að fyrirtæki sem snerta lið 2.1, 2.2 og 2.7 í skýrslunni gátu ekki veitt svör fyrr en eftir áramót, meðal annars vegna bankahruns og ársuppgjöra. Síðan var Alsýn boðað til skilafundar sama dag og halda átti fundinn, því gleymst hafði að boða okkur og var það bara of stuttur fyrirvari. Þann 13.02.2008 kl:12:00 átti síðan að kynna skýrsluna og í þetta sinn var það ekki Alsýn að kenna að fundurinn féll um sjálfan sig, heldur fengu Alsýnarmenn að vita það 13.02.2008, kl: 10:53 að ekki væri hægt að fara yfir skýrsluna vegna þess að ekki höfðu verið gerðar ráðstafanir þar sem formaður atvinnumálanefndar væri fjarverandi. Það er því deginum ljósara hvers vegna skýrsluskil fóru ekki fyrr fram.
Varðandi birtingu á skýrslunni.
Í þessari 23 blaðsíðna skýrslu er að finna inngang og í lok hans kemur eftirfarandi fram "Þess skal getið að gögn sem eru í þessari skýrslu eru trúnaðarmál og aðeins fyrir þá sem greitt hafa fyrir þessa skýrslu. Sérkafli er til birtingar." Hér gefum við eigendum skýrslunar möguleika að leggja skýrsluna fram fyrir bæjarbúa. En ekki setja hana á netið. Bæjarbúar er jú greiðendur skýrslunnar.
Formanni atvinnumálanefndar þykir fátt bitastætt í lokaskýrslunni og verður hver að dæma fyrir sig. Við hjá Alsýn erum ekki sammála þessu og sjáum marga möguleika til atvinnusköpunar í tengslum við verkefnin. Það hefur orðið hrun í landinu og allar forsendur breyttar og þarf engan vísindamann til að benda á, eins og bæjarstjóri gerir réttilega á á bæjarstjórnarfundi 08.01.2009. Það horfir ekkert öðruvísi við hjá Alsýn og allar forsendur til atvinnusköpunar eru breyttar. Fjármálaumhverfið var allt annað við gerð samningsins og forsendur aðrar, fjárfestar sem höfðu svigrúm fram að hruni hafa það ekki lengur. Er þá ekki eðlilegt að skoða hlutina í samhengi og athuga hvað búið er að gera miðað við ástandið eins og það er og hvernig er hægt að bregðast við því. Það eru nú einhver kosningaloforðin sem ekki standast lengur vegna efnahagshrunsins. Eru það óvönduð vinnubrögð að uppfylla þau ekki? Það þarf að skoða alla hluti í samhengi og Alsýn unir því ekki að vera sakað um aðgerðaleysi og óvönduð vinnubrögð því unnið var samviskusamlega eftir samningnum.
Í grein sinni segir formaður atvinnumálanefndar að forsvarsmaður Alsýnar segi að allt sem úrskeiðis hafi farið sé formanninum að kenna. Þetta er ekki satt. Viljum við árétta að ekki er hér ætlað að vega að heiðri Kristjáns sjálfs á nokkurn hátt. Þessi umræða fjallar um vinnubrögð. Formaðurinn sakar okkur um óvönduð vinnubrögð en á hvaða forsendum valdi hann frá verkefni sem hugsanlega geta tengst hans hagsmunum. Við setjum út á það að maður með víðtæk tengsl við atvinnulífið standi í forsvari fyrir atvinnuþróun í Ísafjarðarbæ og hafi þannig bein áhrif á þá starfsemi sem fer þar fram. Það þarf að vera augljóst að hlutleysis sé gætt. Það var ekki Alsýn sem ákvað að fækka verkefnum um ¾. Það var heldur ekki ákvörðun Alsýnar að gefast upp eftir að einungis væri búið að vinna 1/3 af verkefninu.
Einnig er nefnt að farið er mjög frjálslega með staðreyndir. Hér býst ég við að Kristján eigi við að nefnt er í skýrslunni að Kristján sé í stjórn Atvinnuþróunarfélagsins hf. Skipt var um stjórn Atvinnuþróunarfélagsins á haustmánuðum 2008. Vaxtarsamningur Vestfjarða er vistaður í Atvinnuþróunarfélaginu og situr Kristján sem formaður hans. Drögum við Alsýnarmenn þá ályktun að Kristján sé tengdur Atvinnuþróunarfélaginu þar sem þessi sjóður sé tengdur þessu félagi og er verkefni í gangi þessa stundina sem almenningur getur séð á auglýsingaborða á bb.is.
Oft var þörf á að vinna að atvinnumálum í Ísafjarðarbæ en nú er nauðsyn. Það er eindregin ósk Alsýnar ehf. að atvinnulíf hér á svæðinu öllu vaxi og dafni. Það er því von okkar að atvinnumálanefnd með formanninn í broddi fylkingar spýti í lófana og sýni hvað í þeim býr. Þeir hljóta að geta unnið betur og hraðar en Alsýn ehf.
Virðingarfyllst,
Steinþór Bragason, framkvæmdastjóri Alsýnar ehf.
Deila á Facebook
Skrifaðu athugasemd:
ATH. IP talan þín er 38.107.179.207 og er skráð með athugasemdinni.















