Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
18.12.2011

Níels A. Ársćlsson: Er brottkast á síld orsökin fyrir sýkingu í stofninum?

Níels A. Ársćlsson
Níels A. Ársćlsson
Vegna frétta af sýktri síld læðist að manni sá grunur að ástæðan fyrir sýkingu síldarstofnsins sé sá gengdarlausi sóðaskapur sem viðgengist hefur á síldarmiðunum síðustu ár.  Risavaxin flottrollsskip með fullvinnslu um borð hafa verið að ryðja sér til rúms með aukinni græðgisvæðingu í sjávarútvegi.  (Ryksugutogarar eins og Kristján Ragnarsson fyrverandi formaður LÍÚ kallaði þýsku vinnsluskipin fyrir 30 árum).  Undanfarin ár hefur síldinni verið skóflað upp í stórum stíl upp í fjöru við Grundarfjörð og víða.  Mörg skip hafa fengið mun meira magn en þau hafa ráðið við að taka um borð og oft á tíðum hefur mörg hundruð tonnum verið slept dauðum niður á veiðislóðina.


Fullvinnsluskipin eru gjörn á að liggja yfir og nálægt veiðislóð síldarinnar sólarhringum saman og smásíld, slóg, hausar og ýmis afskurður fer þá í hafið í þúsunda tonna tali. Ekki er ósennilegt að þetta sé ástæðan fyrir ástandinu á síldarstofninum í kringum landið!  Eins vakna upp spurningar um hvers vegna síldin hefur þjappað sér á mjög svo óvenjuleg svæði inn í Grundarfirði og innan skerja við Stykkishólm.


Hvaða áhrif hafa hinir nýju öflugu fjölgeislamælar á síldartorfunar í bland við mörgþúsund hestafla vélbúnað síldarskipanna?

Nú verður ekki undan því vikist að "FISKISTOFA" ransaki málið og beiti við það sömu aðferðum og stofnunin hefur notað á undanförnum árum gegn ýmsum einyrkjum með veiðileyfissviftingum.


Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.179.210 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón