Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
30.09.2011

Lilja Rafney Magnúsdóttir og Ólína Ţorvarđardóttir: Betra fiskveiđistjórnunarkerfitil framtíđar

Ólína Ţorvarđardóttir
Ólína Ţorvarđardóttir
« 1 af 2 »

Sjávarútvegs og landbúnaðarnefnd Alþingis hefur verið með í umsagnarferli frumvarp til laga um stjórn fiskveiða sem sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra mælti fyrir á Alþingi s.l. vor.

Af umsögnum að dæma eru afar skiptar skoðanir um framtíðarskipan fiskveiðistjórnunar,fjölmargir umsagnaraðilar lýsa sig sammála þeim markmiðum sem sett eru fram í frumvarpinu en jafnframt kemur fram mikil andstaða við þær grundvallabreytingar sem lagðar eru til á kerfinu og framsetningu frumvarpsins í heild.

Það er því mat formanns og varaformanns sjávarútvegs og landbúnaðarnefndar Alþingis að taka verði frumvarpið til gagngerrar endurskoðunar áður en það verður lagt fram að nýju á 140. löggjafarþingi sem hefst 1.október n.k.


Nýtingasamningar

Við endurgerð frumvarpsins þarf að búa svo um hnúta að gætt verði jafnræðis við gerð og úthlutun nýtingarsamninga og aflaheimilda, ekki síst með skilyrtum, opnum tilboðum. Jafnframt því sé atvinnuréttur sjávarbyggðanna til nýtingar sjávarauðlindarinnar tryggður.

Nauðsynlegt er að opna enn frekar á milli nýtingasamninga og leiguhluta ríkisins þannig að kvótalitlar útgerðir geti sótt um nýtingasamninga og handhafar nýtingasamninga geti leigt tímabundnar aflaheimildir úr leigupotti.Tryggja þarf ríkinu rétt til að endurúthluta nýtingasamningum eða leigja að nýju aflaheimildir gjaldþrota útgerðarfyrirtækja eða fyrirtækja sem hætta af öðrum orsökum. Þak verði sett á hlutdeildarkerfið og það brotið upp að einhverju marki.


Nýliðun,atvinnusköpun,jafnræði

Til að tryggja réttláta skiptingu fiskveiðiauðlindarinnar og nægjanlega nýliðun teljum við heppilegast að farin verði blönduð leið, þ.e. að hægt sé að bjóða í nýtingasamninga ásamt því að nægjanlegt framboð aflaheimilda sé í leigupotti ríkisins. Almenni leiguhlutinn þarf að aukast verulega og verða raunverulegur valkostur þar sem eðlilega verðmyndun aflaheimilda er tryggð. Jafnhliða þarf að stórefla strandveiðar.  Þetta samanlagt teljum við að geti byggt upp möguleika nýliða til áframhaldandi fjárfestinga og atvinnuþátttöku í greininni auk þess sem það stuðlar að dreifðri eignaraðild. Í dag fá  t.d. 50 stærstu sjávarútvegsfyrirtækin úthlutað 84% af aflamarki þessa árs.


Byggðaráðstafanir

Við leggjum til að horfið verði frá hugmyndum um byggðapotta og þar með miðstýringarvaldi ráðherra hverju sinni við úthlutun byggðakvóta. Þess í stað verði leigupottur stækkaður nægilega til þess að verða raunhæfur valkostur á móti nýtingarsamningum. Aflaheimildir úr leigupotti teljum við rétt að svæðistengja og skilyrða við ákveðið  lágmarki aflaheimilda. Hafa verður hugfast að þó að horfið verði frá beinum byggðakvóta verður ríkið að geta brugðist við áföllum í atvinnumálum sjávarbyggða með samningum um ráðstöfun aflaheimilda til sveitarfélaga/fyrirtækja sem skilyrt væru til ákveðins tíma.


Frjálsar strandveiðar í skilgreindri strandveiðihelgi

Með stórefldum strandveiðum er átt við að þær verði gefnar frjálsar innan skilgreindrar strandveiðihelgi með ströngum skilyrðum.

  • Veiðitímabilið verði sex mánuði ársins.
  • Bátar minni en 15 brúttótonn.
  • Tvær handfærarúllur um borð.
  • Skráður eigandi sigli bátnum og geri ekki út aðra báta jafnhliða.
  • Veitt verði 5 daga vikunnar.

Aðrar takmarkanir teljum við óþarfar af hálfu löggjafans, því veður, vélarafl og náttúra munu sjá um að skilyrða veiðarnar innan þeirra marka sem löggjafinn reiknar með að falli undir þessar veiðar í aflaheimildum. Þessar umhverfisvænu sjálfbæru veiðar myndu skila mörg hundruð störfum og stórauknum gjaldeyristekjum í þjóðarbúið.

 

Fiskvinnsla

Við leggjum til að lögskyldað verði að bjóða allan óunninn fisk á innlendan markað og skilið verði milli veiða og vinnslu. Að þessu verði stefnt í áföngum þannig að vaxandi hluti fari á innanlandsmark uns t.d. 80% er náð. Þessi breyting gæti skapað um eitt þúsund störf. Tryggja verður að fiskvinnsla í landi og á sjó sitji við sama borð og búi við sambærilegt rekstrarumhverfi, og að sem mestur afli skili sér að landi og sé nýttur í vinnslu.

Brýnt er að áframhaldandi vinna við gerð nýs frumvarps um stjórn fiskveiða miði að þjóðfélagslega arðbærri og sanngjarnri nýtingu fiskveiðiauðlindarinnar. Til grundvallar höfum við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, jafnræðis og atvinnufrelsisákvæði stjórnarskrárinnar, álit mannréttindanefndar SÞ, að ógleymdri tillögu stjórnlagaráðs um nýtt auðlindarákvæði í stjórnarskrá . Það er traustur grunnur til að byggja á.

Formaður og varaformaður sjávarútvegs og landbúnaðarnefndar Alþingis,
Lilja Rafney Magnúsdóttir, Ólína Þorvarðardóttir.


Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.179.209 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón