Jón Steinsson: Af hverju er LÍÚ á móti tilboðsleiðinni?
Ef tilboðsleiðin er farin þarf útgerðin að bjóða í aflaheimildir á hverju ári. Með tilboðum sínum neyðist útgerðin til þess að veita raunsannar upplýsingar um greiðslugetu sína. Og þá er mun erfiðara fyrir útgerðina að halda því fram að hún hafi ekki bolmagn til þess að greiða það auðlindagjald sem henni er gert að greiða. Þá kemur einfaldlega í ljós á tilboðsmarkaðinum nákvæmlega hvað útgerðin hefur bolmagn til þess að greiða og hún greiðir hvorki minna né meira en hún hefur bolmagn til þess að greiða.
Ef hins vegar samningaleiðin er farin þarf ríkið að semja við útgerðina um auðlindagjald. Á hvaða upplýsingum á ríkið að byggja samningagerð sína? Mati nokkurra sérfræðinga?!? LÍÚ mun ráða til sín sína eigin sérfræðinga (án efa mun fleiri á mun hærri launum) og setja fram flókna útreikninga þess efnis að útgerðin hafi ekki bolmagn til þess að greiða nema málamyndagjald.
LÍÚ gerir sér grein fyrir því að slíkur málflutningur er mun auðveldari ef enginn tilboðsmarkaður er til staðar þar sem raunveruleg greiðslugeta útgerðarinnnar kemur í ljós. Þess vegna gera LÍÚ menn allt sem þeir geta til þess að koma í veg fyrir að markaðslausn verði notuð til þess að ákvarða auðlindagjaldið. Þeir vita að þeir standa betur að vígi ef þeir þurfa ekki að sýna spilin en geta þess í stað gert samninga við stjórnvöld sem oftast nær eru þeim afar hliðholl.
Ég hef búið til tvær glærukynningar um tilboðsleiðina fyrir þá sem vilja kynna sér frekar út á hvað hún gengur og þá kosti sem hún hefur fram yfir samningaleiðina. Fyrst er kynning á útfærslu á tilboðsleiðinni þar sem um framlengjanlega eins árs leigu er að ræða og framsal á leigðum aflahlutdeildum er óheimilt (útgerðir geta hins vegar ákveðið að framlengja ekki leigusamninga sína): (Leigu)tilboðsleiðin. Í hinni kynningunni fjalla ég um grunngerð tilboðsleiðarinnar: Tilboðsleiðin.
Deila á Facebook
Skrifaðu athugasemd:
ATH. IP talan þín er 38.107.179.207 og er skráð með athugasemdinni.
















Þú fellur í þá gryfju sem skoðanabræður þínir eru í Jón, að það sé bara LÍÚ sem hafnar því að aflaheimildir innan og utan íslenskrar fiskveiðilögsögu fari á uppboð.Ekki veit ég hver hefur logið því í þig að LÍÚ sé eitt í andstöðunni, en ég hef grun um það.Reyndar er það svo með ykkur hagfræðinga að trú ykkar í hagfræði er meira og minna pólitísk.Ég legg til að þú segir sannleikann um andstöðu sjómannasamtakanna við hugmyndir þínar um ríkisvæðingu sjávarútvegsins.