Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
08.12.2011

Eyţór Jóvinsson: Vertu Vestfirđingur !

Eyţór Jóvinsson verslunarstjóri á Ísafirđi
Eyţór Jóvinsson verslunarstjóri á Ísafirđi

Þótt Ríkið kjósi að taka aðra hverja skattkrónu burtu frá Vestfjörðum, þá er ekki þar með sagt að við þurfum að gera það líka. Til Vestfjarða flæðir fjármagn, hér eru útgerðir og öflug alþjóðleg fyrirtæki. Ferðamannaiðnaðurinn hefur elfst og straumur ferðamanna fer vaxandi með hverju ári. Það er undir okkur komið að auka hagvöxt á Vestfjörðum og halda honum þar.


Við þurfum að standa saman að því að styrkja innviði samfélagsins, þjónustu og verslun. Velta fjármagninu aftur inn í samfélagið, en ekki flytja það suður, samferða skattinum okkar. Viltu hafa öflug menningarlíf? - Farðu þá í leikhús, á tónleika og sjáðu sýningar, af nógu er að taka. Kraftmikið íþróttastarf treystir á veglega umgjörð og íbúar mæti og styðji sín lið, en lesi ekki um sigrana í blöðum morgundagsins. Farðu til fisksalans, farðu út að borða og farðu aðeins fyrr á pöbbinn, kauptu kjöt af næsta bónda, nýttu þér þjónustu iðnaðarmanna og verslaðu vestfirskar vörur og þjónustu. - Lestu vestfirskar bækur, klæddu börnin þín í útivistafatnað frá Dórukoti, gefðu kisanum Murr, berðu á þig krem frá Villimey, taktu Hafkalk og borðaðu harðfisk. - Vertu Vestfirðingur!


Vestfirðir standa á mikilvægum tímamótum. Sú hætta er raunveruleg að samfélagið fyrir vestan falli saman vegna fámennis og flótta fjármagns, og þá verður ekki aftur snúið. Að sama skapi eru allar líkur á því að hér byggist upp blómleg og öflugt samfélag, með smá hugafarsbreytingu og vakningu er allt hægt. Sendum ekki fjármagnið burt frá vestfjörðum, sendum framleiðslu, þjónustu og vörur frá okkur. Fáum fjármagnið til okkar og nýtum það í heimabyggð.


Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.179.210 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón