Eyţór Jóvinsson: Háskóli Íslands rćndi Vestfirđi
Jóhanna Sigurðardóttir hélt ræðu á Hrafnseyri í sumar, þar sem því var fagnað að 200 ár væru liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar. Þar kom meðal annars fram í hátíðarræðu hennar að það ætti að stofna prófessorstöðu á Vestfjörðum í nafni Jóns Sigurðssonar. Orðrétt sagði hún:
„Hefur Alþingi nú samþykkt að stofnuð verði prófessorsstaða við Háskóla Íslands sem verði tengd nafni Jóns Sigurðssonar og Hrafnseyri. Sá sem gegna mun stöðunni skal hafa fasta búsetu á Ísafirði eða nágrenni og hafa um kennslu og rannsóknir starfsskyldur og samstarf við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum og Háskólasetur Vestfjarða"
Svo afgreiðir Alþingi málið með þingsályktunartillögu: „Prófessorsstaðan verði við Háskóla Íslands en starfsskyldur þess sem henni gegnir verði m.a. við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum og í samstarfi við Háskólasetur Vestfjarða".
Að lokum auglýsir Háskóli Íslands stöðuna: „Prófessorsstarfinu fylgir rannsókna- og kennsluskylda við Háskóla Íslands auk
þess sem starfsskyldur verða við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum og í samstarfi við Háskólasetur Vestfjarða. Gert er ráð fyrir starfsstöð á tveimur stöðum, þ.e. að Hrafnseyri við Arnarfjörð og við Háskóla Íslands".
Þannig hefur prófessorstaðan þróast úr því að prófessorinn hafi búsetu og starfi á Vestfjörðum yfir í að prófessorinn hafi búsetu og starfi í Reykjavík, en kíki vestur á tillidögum, svona ef að hann má vera að því. Háskóli Íslands hefur rænt okkur mikilvægu starfi. Það er fátt jafn mikilvægt litlu samfélagi eins og Vestfjörðum sem á í varnarbaráttu, að hafa og geta byggt upp háskóla- og menntasamfélag. Ein prófessorstaða á Vestfjörðum er margfalt mikilvægari fyrir okkar samfélag, en að Háskóli Íslands fjölgi um einn í básunum hjá sér!
Eyþór Jóvinsson.
Deila á Facebook
Skrifađu athugasemd:
ATH. IP talan ţín er 38.107.179.209 og er skráđ međ athugasemdinni.















