Atli Þór Fanndal: Þöggun hefur aldrei leitt til réttarbóta
Það er áhugavert að fylgjast með viðbrögðum við ummælum Jenis av Rana. Það sem er auðvitað merkilegast er hvað almenningur er meðvirkur með þessum fordómum á sama tíma og hann vill fjarlægja sig. Jenis av Rana er málaður sem einhversskonar öfgamaður, sem hann er að sumu leyti. Það hefur þó komið í ljós það sem flestir sem þekkja málefni hinsegin fólks að í þessu tilviki talaði hann ekkert fyrir neinum jaðarskoðunum í Færeyjum.
Þjóðir hafa ekki eina skoðun, en þær eiga það til að hafa sameiginlega persónu. Þar með er ekki sagt að allir séu partur af henni. Því minni sem samfélög eru því meira ráðandi getur ein skoðun orðið, en líklega aldrei algild. Færeyingar eru ofboðslega vinalegir, gestrisnir og kurteisir. Ísland og Færeyjar eiga nánast sama tungumál og ótrúlega svipaða sögu. Það er eðlilegt að okkar samskipti séu mikil og gagnkvæm virðing ríki. Það er þó ekki það sama að vera kurteis og að vera fordómalaus.
Kannski er það einmitt það sem gerir Jenis að öfgamanni í Færeyjum. Hann gaf frá sér mjög aggressífa afstöðu, í landi þar sem kurteisi og gestrisni er almenn. Hatur á hinsegin fólki er einfaldlega ekki sú jaðarskoðun þar og hún er hér. Íslendingar eru stuðningsfólk mannréttinda hinsegin fólks, og það gerir skoðanir Jenis að öfgaskoðun hér á landi en verum ekki svo sjálfhverf að halda að fordómar gegn hinsegin fólki séu allsstaðar öfgaskoðanir. það eru eðlileg viðbrögð borgara að fjarlægja sig frá átökum, það er ekkert sem miðstéttin óttast meir en að vera jaðarsett.
Joseph P. Overton, gerði kenninguna um Overton gluggan. Það er í raun kenning um að á hverjum tíma séu vissar skoðanir ráðandi og ásættanlegar. Þannig er viss hugmyndafræðilegur gluggi opinn í almennri umræðu. Overton skipti skoðunum niður í stig þau eru óhugsandi, róttæk, ásættanleg, skiljanleg, almenn, stefna/reglur. Þessi gluggi er mismunandi eftir löndum. Til eru lönd þar sem það er argasta rótæki að finnast að konur eigi að fá að keyra bíl. Sumstaðar er þróunarkenningin tabú, til eru svæði þar sem efasemdir um hlýnun jarðar eru mjög mainstream, og sumstaðar er það fjarstæðukennt að trúleysingi nái frama í stjórnmálum, það eru til lönd þar sem fólk er kurteist og fordómafullt.
Það er skammarlegt að sjá ráðamenn hér heima taka þátt í þöggun um raunverulega stöðu hinsegin fólks í Færeyjum. Ég vellti fyrir mér hver viðbrögðin hefðu verið ef Jenis av Rana hefði neitað að snæða með Jóhönnu vegna þess að hún væri svört, blind eða kristin. Það hefur nefnilega komið rækilega í ljós þrátt fyrir yfirlýsingar um annað að andstaða við lífsgæði og mannréttindi hinsegin fólks er alls ekki jaðarskoðun í Færeyjum.
Raunveruleg fórnarlömb er hinsegin fólk í Færeyjum ekki Færeyingar eða Jóhanna. Jenis av Rana er maður með bakland. Hann er læknir, formaður miðjuflokksins, þingmaður og trúarleiðtogi. Hann kemur fram af hatri og hroka við erlendan ráðherra og gest. Hvernig heldur fólk sem nú ver samfélagið sem kaus hann á þing að þessi maður komi fram við hinsegin táning sem ekki nýtur neinnar stöðu í Færeysku samfélagi?
Færeyingar verða að sinna sínum ímyndavanda sjálfir. Það er ekki okkar hlutverk að verja þá og halda á lofti klisjum um að ekki megi dæma þjóð fyrir einn mann. það er nefnilega alveg hægt að dæma samfélag eftir þeirra kjörnu fulltrúum, sérstaklega þegar í landinu ríkir lýðræði. Enn fremur má dæma Færeyinga fyrir þá staðreynd að Jenis er kosinn eftir að upp komu ásakanir um að hann hefði brotið barnaverndarlög með því að tilkynna ekki misnotkun sem átti sér stað innan hans safnaðar. Með sömu rökum má dæma Íslendinga fyrir Árna Jóhnsen, kjörin fulltrúa sem á að baki sér stuld, múturþægni og að hafa ráðist á t.d. Pál Óskar. Sá hinn sami fékk svo syndaaflausn með vægast sagt vafasömum aðferðum. Fyrir það má dæma okkur og í raun vona ég að fólk taki þetta inn í reikninginn.
Jenis hefur rétt á að hata vilji hann það, en það er skylda okkar allra að sjá til þess að fólk um allan heim sjái bakslagið sem hatur leiðir af sér. það skiptir hisnegin fólk og alla minnihluta máli að sjá það skýrt að almenningur tekur afstöðu með grunnréttindum og lífsgæðum allra. Það eru slæm skilaboð sem almenningur sendir þegar tekið er þátt í að breiða yfir fordóma. Málfrelsið er líka fyrir þá sem vilja gagnrýna hatur og fordóma, málfrelsið var aldrei hannað eingöngu til að verja "miðaldra, hvíta, kristna karlmenn í valdastöðu".
Deila á Facebook
En henni og eiginkonu hennar hefur hefur mér vitanlega ekki verið boðið hvorki til Bretlands né Þýskalands.Kannski er það vegna þess að hjónaband fólks af sama kyni er ekki virt í þessum löndum og stangast þar af leiðandi á við prótokollsiði þessara þjóða.Og væri ekki við hæfi að hún sakaði ESB um mannréttindabrot ,rétt eins og litla vinaþjóð okkar Færeyinga sem einir hafa boðið henni í heimsókn.Hún á að skammast sín fyrir ummælin.
Skrifaðu athugasemd:
ATH. IP talan þín er 38.107.179.207 og er skráð með athugasemdinni.
















Jóhanna Sigurðardóttir sagði á blaðamannafundi í dag að Færeyingar virtu ekki mannréttindi.Hún sakaði með öðrum orðum Færeysku landstjórnina sem hún var nýbúin að heimsækja, um mannréttindabrot.Þetta er vitanlega ekkert annað en hroki.Ég efast um að hún hefði látið þetta út úr sér um Bretland eða Þýskaland.Forseti íslands á að biðja Færeyinga afsökunar á ummælum hennar.