Landsmálavefur á Vestfjörðum | skutull@skutull.is
26.02.2010

Arna Lára Jónsdóttir: Reynslunni ríkari

Arna Lára Jónsdóttir
Arna Lára Jónsdóttir

Síðustu fjögur ár sem bæjarfulltrúi Í-listans hafa verið afar lærdómsrík.  Í kosningabaráttunni fyrir fjórum lofaði hvert framboðið á fætur öðru glænýrri sundlaug með öllu tilheyrandi, leggja átti göngustíg út í Hnífsdal (sem vonandi verður gert í sumar), fara átti í miklar framkvæmdir á skíðasvæðinu, búið var að skipuleggja stúdentagarða á hafnarsvæðinu og menn gortuðu sig af 40 úthlutuð lóðum í Tunguhverfi.  Those were the days.  Nú er staðan allt önnur.


Við stöndum frammi fyrir því að þurfa að teikna nýja framtíðarsýn miðað við allt aðrar forsendur.  Á slíkum tímum reynir á sterka stjórn sveitarfélagsins með skýra forgangsröðun, þar sem velferðarþjónustan er sett í forgang, en um leið þarf að sýna aga og ráðdeild í fjármálum.


Það eru spennandi tímar framundan og gríðarmörg tækifæri til staðar, þrátt fyrir tímabundna erfiðleika. Um næstu áramót flytjast málefni fatlaðra yfir til sveitarfélaga. Þetta er afar vandasamur flutningur þar sem við þjónustunni hefur verið vel sinnt síðustu árin. Það verður okkar markmið að reyna gera betur og samþætta þjónustuna við aðra þjónustuþætti sem sveitarfélagið hefur bjóða, til hagsbóta fyrir þjónustuþega.   Það verður væntanlega ekki langt að bíða að málefni aldraðra færist einnig yfir til sveitarfélaga.


Við búum yfir miklu tækifærum í sjávarútvegi, þar sem þekking og nýsköpun greinarinnar fara saman.  Nýjar greinar eru að ryðja sér rúms og má þar nefna kræklingarækt, sem getur orðið mikil lyftistöng fyrir okkar samfélag, þar kemur saman þekking og góðar landfræðilegar aðstæður.  Ekki er hjá því komist að nefna ferðaþjónustuna sem er sístækkandi hluti af hagkerfi okkar Vestfirðinga. Við urðum flest vör við þá ferðamannasprengju sem varð hér í fyrrasumar og gera má ráð fyrir að  ferðamannastraumurinn enn meiri nú í sumar. Þetta þurfum við að nýta okkur.   Mikil tækifæri eru í því fólgin að hrinda hugmyndina um hin fögru fimm í framkvæmd, sem byggir á því að endurbyggja gömul hús í byggðakjörnunum okkar.  Það breytir ekki bara ásýnd bæjarins heldur er þetta tækifæri fyrir ferðaþjónustuna.


Það eru svo sannarlega spennandi tímar framundan og verkefnin næg. Ég vil leggja mitt vinnuframlag af mörkunum og taka þátt í uppbyggingu Ísafjarðarbæjar.  Ég hef öðlast mikla reynslu á síðustu fjórum árum og bið um stuðning til áframhaldandi verka fyrir Ísafjarðarbæ.


Arna Lára Jónsdóttir, frambjóðandi í prófkjöri Í-listans


Deila á Facebook

Skrifaðu athugasemd:

ATH. IP talan þín er 38.107.179.209 og er skráð með athugasemdinni.


Vefumsjón