Landsmálavefur á Vestfjörðum | skutull@skutull.is
03.02.2012

Magnús Ólafs Hansson: Hvert stefnum við?

Magnús Ólafs Hansson, Patreksfirði
Magnús Ólafs Hansson, Patreksfirði
Samkvæmt tölum Hagstofunnar hefur fólki á suðursvæði Vestfjarða fækkað um 40% frá árinu 1990. Með fækkandi fólki dregur jafnt og þétt úr allri þjónustu, eins og gefur að skilja.  Fyrir þriðjungi aldar eða kringum 1980 gat fólk á svæðinu sótt flesta þjónustu á Patreksfjörð. Þá var Patreksfjörður miðstöð allrar opinberrar þjónustu fyrir svæðið í heild - með símstöð, heilsugæslu, apóteki, sjúkrahúsi, bönkum, sýsluskrifstofu, lögreglustöð og pósthúsi. Frá þessum tíma hefur alvarlega dregið úr þessari þjónustu.

Til að spyrna við fótum var gerð atlaga gegn þessari óheillaþróun með sameiningu hreppa á svæðinu í eitt stærra og öflugra sveitarfélag, Vesturbyggð. Næst þar á eftir ákváðu stjórnvöld að efla Vestfirði í heild með því að færa opinbera þjónustu frá Vesturbyggð til Ísafjarðar. Hver er eiginlega sú byggðastefna?

...
Meira
29.01.2012

Kristinn H. Gunnarsson: 23 útgerðarmenn - loðnir um lófana

Kristinn H. Gunnarsson
Kristinn H. Gunnarsson
Það eru sannkölluð veltiár í uppsjávarveiðum og -vinnslu. Sumarævintýrið í markílnum er enn í fersku minni. Hagstofan upplýsir í nýrri skýrslu að hreinn hagnaður 2010 hafi verið 32,3% af tekjum (fyrir afskriftir , skatta og fjármagnskostnað), sem er meira en tvöfalt meira en hjá botnfiskútgerðinni. Nú er stóra loðnuvertíðin hafin. Búist er við því að veidd verði a.m.k. 400.000 tonn og að útflutningsverðmætið verði 20 milljarðar króna. Sjávarútvegsráðherrann telur að það verði jafnvel meira eða á þriðja tug milljarða króna. Þessi miklu verðmæti og væntanlegur ofurhagnaður skiptast á milli útgerða aðeins 23 skipa. Þeir fáu sem eiga fyrirtækin verða loðnir um lófana....
Meira
25.01.2012

Lína Björg Tryggavdóttir: Lenging á lokun leikskóla í Ísafjarðarbæ

Lína Tryggvadóttir, varabæjarfulltrúi Í-listans
Lína Tryggvadóttir, varabæjarfulltrúi Í-listans
Þetta álag sem Ísafjarðarbær er að velta yfir á foreldra er ósættanlegt. Af hverju er ekki hægt til dæmis að nýta þá krakka sem eru í bæjarvinnunni? Fá þá til að koma inn í leikskólann og lengja þann tíma sem starfsmenn leikskólanna hafa til að taka sumarfrí þannig að alltaf séu reyndir starfsmenn með krökkunum sem eru margir mjög hæfir til að gegna þessu starfi, enda munu foreldrar þurfa að leita til þeirra vegna pössunar þegar leikskólarnir eru lokaðir, en bara á mun hærra verði.

Ég skora á bæjarstjóra, leikskólastjóra leikskólana og sviðstjóra Skóla- og fjölskyldusviðs að endurskoða þessa ákvörðun og reyna að finna aðra lausn á þessu vandamáli sem kemur fjölskyldufólki í bæjarfélaginu betur.

...
Meira
24.01.2012

Kristinn H. Gunnarsson: Of langt gengið

Kristinn H. Gunnarsson
Kristinn H. Gunnarsson
Ástæða viðsnúningsins er einföld. Umferðin mun ekki standa undir stofnkostnaði nema að hluta til. Það átti ekki að koma neinum á óvart. Vorið 2008 samþykkti Alþingi að tillögu Kristjáns L. Möllers að ráðist yrði í Vaðlaheiðargöng sem einkaframkvæmd og að ríkið myndi fjármagna þau að hálfu. Þá sagði Steingrímur J. Sigfússon í ræðu á Alþingi þann 17. apríl að hann hefði reiknað út að göngin ættu að geta séð um 45 - 60% af kostnaðinum. Fullyrðingar ári síðar um að ríkið þyrfti ekkert að greiða voru alltaf reistar á sandi.


Það er of langt gengið að knýja fram Vaðlaheiðargöng , á röngum forsendum, en eiga ekki fyrir Vestmannaeyjarferju sem hæfir nýrri höfn og fresta Dýrafjarðargöngum um 8 ár. Það þarf öruggar heilsárssamgöngur alls staðar.

...
Meira
23.01.2012

Ólína Þorvarðardóttir: Staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni

Ólína Þorvarðardóttir alþingismaður
Ólína Þorvarðardóttir alþingismaður
Ég er sjálf fimm barna móðir, hef átt því láni að fagna að hafa aldrei staðið frammi fyrir neinum hindrunum varðandi það að ganga með og fæða barn. Ég er forsjóninni þakklát fyrir það lán. Þess vegna vil ég veita þessu máli framgang. Það vil ég gera á siðferðislega ábyrgum forsendum. Ég treysti þingheimi til þess og hef því góða von um að þetta mál fái ábyrga meðferð.

Grunnforsenda minnar afstöðu er sú að með því að samþykkja að hafin verði vönduð vinna við undirbúning frumvarps um staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni tökum við skýra afstöðu gegn staðgöngumæðrun í hagnaðarskyni.

...
Meira
Síða 1 af 103
Vefumsjón