Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
24.04.2012 - 12:46

Píanóverk eftir Liszt, Chopin, Mussorgsky og Tchaikovsky í Hömrum á sunnudag

Giovanni Cultrera
Giovanni Cultrera
Ítalski píanóleikarinn Giovanni Cultrera heldur tónleika í Hömrum á Ísafirði næstkomandi sunnudag 29. apríl kl. 15:00. Þetta eru áskriftartónleikar á vegum Tónlistarfélags Ísafjarðar. Giovanni Cultrera flytur píanótónlist eftir Liszt, Chopin, Mussorgsky og Tchaikovsky. Áskriftarkort félagsmanna í Tónlistarfélaginu gilda á tónleikana, en einnig eru seldir miðar við innganginn.


Giovanni Cultrera fæddist í Catania á Ítalíu árið 1970. Hann stundaði nám við Superior Institute for Musical Studies "V. Bellini" og útskrifaðist þaðan með hæstu einkunn í píanóleik. Framhaldsnám stundaði hann við International Academy „Euterpe" þar sem hann var í þrjú ár við framhaldsdeild í píanóleik. Frá árinu 1992 hefur hann hlotið 30 alþjóðleg verðlaun og komið fram á yfir eitt þúsund einleikstónleikum í 25 löndum.

...
Meira
24.04.2012 - 09:40

Saltiđ úr Reykjanesi viđ Djúp: Fyrsta sending til Bandaríkjanna

Björn Steinar Jónsson, Yngvi Eiríksson og Garđar Stefánsson stofnuđu Saltverkiđ í fyrra. Mynd dv.is
Björn Steinar Jónsson, Yngvi Eiríksson og Garđar Stefánsson stofnuđu Saltverkiđ í fyrra. Mynd dv.is
„Salt er ekki það sama og salt," segja saltararnir í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp. Saltverk Reykjanes hefur afgreitt sína fyrstu pöntun til Bandaríkjanna og nú er vestfirska sjávarsaltið komið í hillur í frægustu saltverslunum þar í landi. „Hann er vægast sagt algjör saltgúrú," segir Garðar Stefánsson, einn af stofnendum sprotafyrirtækisins Saltverk Reykjanes, í viðtali við DV í gær, um bandaríska kaupandann. Það er enginn annar en Mark Bitterman, höfundur bókarinnar Salted, sem pantaði. Saltið úr Ísafjarðardjúpinu er því komið í sölu í Portland og New York í Bandaríkjunum....
Meira
24.04.2012 - 07:32

Auglýst eftir sanngjarnri og yfirvegađri umrćđu í stađ hrćđsluáróđurs

Sigurđur Pétursson bćjarfulltrúi Í-listans
Sigurđur Pétursson bćjarfulltrúi Í-listans
Sigurður Pétursson bæjarfulltrúi Í-listans í Ísafjarðarbæ gagnrýnir umfjöllun atvinnumálanefndar bæjarins um frumvörp ríkisstjórnarinnar um stjórn fiskveiða og veiðigjöld. Hann segir að breytingar á kvótakerfinu muni verða Vestfirðingum til góðs og auglýsir eftir yfirvegaðri umræðu í stað hræðsluáróðurs.  Sigurður segir að upphrópanir hagsmunaaðila um gjaldþrot fyrirtækja, tekjutap sveitarfélaga og einstaklinga og atvinnubrest, verði að taka með miklum fyrirvara. „Hér með er auglýst eftir sanngjarnri og yfirvegaðri umræðu í stað hræðsluáróðurs," segir Sigurður.  „Það vekur athygli að í umsögn atvinnumálanefndar Ísafjarðarbæjar er engin afstaða tekin til þeirrar grundvallarspurningar, að þeir sem fá einkaafnotarétt á mikilvægustu auðlind landsins, nytjastofnum á Íslandsmiðum, greiði fyrir það sanngjarnt afgjald," bætir hann við....
Meira
23.04.2012 - 14:45

Heyrđu mig nú - Vestfirskur tónlistarţáttur birtur á vestur.is

Heyrđu mig nú: Jón Kr. Ólafsson í spjalli viđ Steingrím Rúnar Guđmundsson
Heyrđu mig nú: Jón Kr. Ólafsson í spjalli viđ Steingrím Rúnar Guđmundsson
Samkomulag hefur náðst við vefmiðilinn vestur.is um sýningar á vesfirskum tónlistarþáttum sem nefnast Heyrðu mig nú. Þættirnir eru framleiddir af hópi dagskrárgerðarmanna sem nefna sig Listavélin. Þættirnir hafa verið í vinnslu síðan í febrúar 2011 og fjalla um vestfirska tónlist. Þar er farið víða um Vestfirði og tónlistarsagan fönguð. Að Listavélinni standa þau Baldur Páll Hólmgeirsson, Fjölnir Már Baldursson, Perla Sigurðardóttir og Steingrímur Rúnar Guðmundsson. Fyrsti þátturinn verður sendur í loftið á vestur.is næstkomandi föstudag 27. apríl.  Í þeim þætti verður spjallað við jazzarann, listmálarann og hárskerann Villa Valla og hljómsveitin Klysja verður tekin tali.

Í næstu þáttum koma fram þau Ásthildur Cesil, Sokkabandið, Jón Kr Ólafsson, Skundi litli, ásamt hinum ýmsu tónlistarviðburðum á Vestfjörðum. Áætlað er að þættirnir verði sýndir vikulega á Vestur.is og er hver þáttur um tíu mínútur að lengd. Helstu styrktaraðilar þáttanna eru: Menningarráð Vestfjarða, Ísafjarðarbær, Hamraborg, Húsasmiðjan og Eymundsson.
23.04.2012 - 12:12

Ný bók vćntanleg: Ćvisaga Ţorsteins Ţorleifssonar klénsmiđs á Kjörvogi á Ströndum

Kjörvogur í Reykjafirđi í Árneshreppi. Mynd litlihjalli.is
Kjörvogur í Reykjafirđi í Árneshreppi. Mynd litlihjalli.is
Hallgrímur Gíslason frá Gröf í Birtufirði hefur ritað ævisögu Þorsteins Þorleifssonar á Kjörvogi og kemur hún út innan tíðar. Hallgrímur er afkomandi Þorsteins og gaf út ritið „Viðvaning" eftir Þorstein klénsmið, þegar opnuð var sýning um Þorstein og verk hans í handverkshúsinu Kört í Árnesi 26. júní 2010. Þorsteinn Þorleifsson á Kjörvogi (1824-1882) var þjóðsagnapersóna í lifanda lífi. Hann lærði járnsmíði í Reykjavík og í Kaupmannahöfn og þótti listagóður smiður. Auk smíðanna stundaði hann sjómennsku, búskap, lækningar og tók á móti börnum. Síðustu 20 ár ævi sinnar bjó hann á Kjörvogi í Árneshreppi.

Hallgrímur Gíslason ævisöguritari er dóttursonarsonur Þorsteins klénsmiðs. Hann hefur nú lokið að rita sögu langafa síns og er búinn að fá útgefanda að verkinu. Til að fjármagna útgáfuna þarf að afla styrkja og fá áskrifendur að verkinu. Þeir sem vilja gerast áskrifendur að ævisögu Þorsteins Þorleifssonar klénsmiðs í Kjörvogi á Ströndum,eftir Hallgrím Gíslason, geta haft samband við höfund á netfanginu hallgrimurgi@gmail.com eða í síma 475-8952 eða 849-4509. Bókin kostar 6.500 krónur eintakið. Þetta kom fram á fréttavefnum litlihjalli.is.
23.04.2012 - 09:55

Ingibjörg Valgeirsdóttir hćttir sem sveitarstjóri á Hólmavík

Ingibjörg Valgeirsdóttir sveitarstjóri
Ingibjörg Valgeirsdóttir sveitarstjóri
Ingibjörg Valgeirsdóttir hefur sagt upp sem sveitarstjóri Strandabyggðar. Þetta kom fram í yfirlýsingu frá Ingibjörgu á vef Strandabyggðar í síðustu viku. Ingibjörg var ráðin sveitarstjóri í Strandabyggð í kjölfar sveitarstjórnarkosninga í júní 2010. Ástæða uppsagnarinnar er fjölskylduaðstæður. Ingibjörg segir á vef Strandabyggðar:

„Kæru íbúar Strandabyggðar.

Ég hef tekið þá afar erfiðu ákvörðun að segja upp starfi mínu sem sveitarstjóri Strandabyggðar frá og með 1. september 2012 vegna fjölskylduástæðna. Það eru spennandi tímar framundan í okkar öfluga samfélagi - eins og alltaf!

Með hlýju þakklæti, Ingibjörg.“

23.04.2012 - 09:01

Geymir ţú skjöl eđa heimildir um starfsemi íţróttafélaga á Vestfjörđum?

Íţrótta- og Ólympíusambands Íslands er 100 ára
Íţrótta- og Ólympíusambands Íslands er 100 ára
Átak í söfnun skjala um starfsemi íþróttafélaga hefur verið hleypt af stokkunum í samstarfi íþróttahreyfingarinnar og héraðsskjalasafna í landinu. Þetta er gert í tilefni af 100 ára afmæli Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Sambandið og Félag héraðsskjalavarða á Íslandi hafa tekið höndum saman um átak í söfnun og skráningu á skjölum íþróttafélaga og íþróttatengdum skjölum, svo sem sendibréfum, ljósmyndum, myndböndum, fundargerðum, mótaskrám, félagaskrám, bókhaldi, og merkjum. Íþróttafélög í Ísafjarðarsýslu og þeir sem hafa undir höndum skjöl tengd íþróttum á því svæði, eru hvattir til að hafa samband við Héraðsskjalasafnið á Ísafirði....
Meira
22.04.2012 - 13:01

Ísafjarđarbćr úthlutar menningarstyrkjum til 5 verkefna

Ísafjörđur... menningarbćr. Mynd Ágúst Atlason
Ísafjörđur... menningarbćr. Mynd Ágúst Atlason
Ísafjarðarbær úthlutaði nýlega menningarstyrkjum til fimm verkefna að upphæð 775 þúsund krónur. Er það um að ræað fyrri úthlutun ársins. Auglýst var eftir umsóknum fyrir 31. mars.  Eftirtaldir hlutu styrk: Fjölnir Már Baldursson, Ísafirði, til kvikmyndagerðar, kr. 150.000.- Gospelkór Vestfjarða til rekstrar kr. 75.000.- Listavélin, Ísafirði, í verkefnið ,,Heyrðu mig nú, vestfirskir tónlistarþættir“, kr. 200.000.-. Litli Leikklúbburinn, Ísafirði, styrkur vegna rekstrartaps, kr. 200.000.-. Sunnukórinn á Ísafirði til undirbúnings 80 ára afmælis kórsins 25.jan. 2014, kr. 150.000.-.  Umsókn Útvarpsstöðvarinnar Lífæðin FM, Bolungarvík var hafnað.
20.04.2012 - 14:13

Rifnar ţakiđ af ţegar átta karlakórar syngja saman í íţróttahúsinu á Ísafirđi á laugardag?

Karlakórinn Ernir í Ísafjarđarsýslu er gestgjafi kóramótsins
Karlakórinn Ernir í Ísafjarđarsýslu er gestgjafi kóramótsins
Raddböndin verða þanin til hins ítrasta á laugardaginn í Íþróttahúsinu við Torfnes á Ísafirði. Þar munu koma saman hátt á þriðja hundrað söngvara úr 8 karlakórum á kóramót. Spurning hvort þakið þolir álagið. Tónleikarnir hefjast klukkan 14 og munu standa til klukkan 17 á laugardaginn. Karlakórar af norðanverðu landinu mynda Söngfélagið Heklu og það eru þeir sem standa að kóramótinu. Með þeim syngja tveir gestakórar af Suðurlandi. Fyrst syngja kórarnir eigin dagskrá, 3-5 lög hver, síðan syngja þeir saman ein 5 lög og enda á þjóðsöngnum, Ó, Guð vors lands. Vestfirðingar eru hvattir til að sækja þessa tónleika, enda ekki oft sem að slík tónlistarveisla er hér á boðstólum....
Meira
20.04.2012 - 11:29

Engin mjólkurvinnsla á Ísafirđi í framtíđinni segir forstjóri Mjólkursamsölunnar

Mjólkurstöđin á Ísafirđi. Mynd Kári Ţór Jóhannsson
Mjólkurstöđin á Ísafirđi. Mynd Kári Ţór Jóhannsson
Mjólkursamsalan hyggst ekki hefja mjólkurvinnslu í Mjólkustöðinni á Ísafirði. Þetta kemur fram í frétt á vefnum vestur.is. Þar segir að MS hafi á dögunum kynnt breytingar í vinnsluskipulagi og umtalsverðar fjarfestingar, en ekki minnst einu orði á starfstöðina á Ísafirði, þar sem dregið hefur mjög úr starfsemi á síðustu misserum. Einar Sigurðsson forstjóri MS staðfesti það í samtali við Vestur.is að ekki verði um frekari mjólkurvinnslu á Ísafirði að ræða, hvorki pökkun á mjólk né í framleiðslu á öðrum mjólkurafurðum. „Tækin eru einfaldlega komin á endastöð og ekki hagkvæmt að fjárfesta í nýjum tækjum til að setja upp á Ísafirði" sagði Einar....
Meira
Vefumsjón