Í ýmsu ađ snúast hjá lögreglu fyrstu viku ársins
Í ýmsu hefur verið að snúast hjá lögreglunni á Vestfjörðum fyrstu viku ársins. Sex ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í liðinni viku og sá sem hraðast ók var stöðvaður á Steingrímsfjarðarheiði á 109 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km.
Tveir ökumenn voru handteknir á Ísafirði grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar var stöðvaður rétt fyrir miðnætti á fimmtudag en hinn um kl. 14:00 á föstudaginn.
Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt í vikunni. Annað var minniháttar en um hádegisbil á sunnudaginn valt bifreið út af veginum um Mikladal milli Patreksfjarðar og Tálknafjarðar. Ökumaður var einn í bifreiðinni og var hann fluttur á sjúkrahús til skoðunar en reyndist ekki alvarlega slasaður. Mikill krapi var á veginum og er talið að ökumaður hafi misst stjórn á bifreiðinni af þeim sökum.
Haldið var áfram átaki um eftirlit með skoðun ökutækja. Lögreglumenn á Hólmavík gáfu eigendum 17 bifreiða sjö daga frest til að færa bifreiðar sínar til skoðunar. Ef slíkri boðun er ekki sinnt eru skráningarnúmer bifreiðanna fjarlægð.
Á laugardeginum tapaðist rauður verkfærakassi og loftpressa á leiðinni frá Brú í Hrútafirði til Hólmavíkur. Eigandi þessara muna var á ferð vestur á pallbifreið og varð fyrir því að hleri opnaðist og verkfærin féllu af. Hafi einhver upplýsingar um hvar þessir munir eru niðurkomnir eru þeir beðnir um að láta lögregluna á Hólmavík vita í síma 450-3722.
Á sunnudagskvöld, þrettánda dag jóla, fór fram sameiginleg þrettándabrenna Ísfirðinga og Bolvíkinga í miðbæ Ísafjarðar. Talsverð umferð var og margt fólk saman komið. Umferð gekk áfallalaust í tengslum við þessi hátíðarhöld.















