HB Grandi er stćrsta sjávarútvegsfyrirtćki landsins
Núverandi kvótakerfi hefur þjónað Reykjavík best. Aflahlutdeild Reykjavíkur hefur aukist um 86% frá því frjálst framsal kvóta var leitt í lög árið 1991. Þá var aflahlutdeild útgerða í Reykjavík 7,7% en var á síðasta fiskveiðiári 14,4%. Aflahlutdeild Reykjavíkur var 44.000 þorskígildistonn fiskveiðiárið 2010/2011. Þetta þýðir að kvóti Reykvíkinga er 20 þúsund þorskígildistonnum meiri, en hann hefði verið árið 1991. Það er mesta aukning í einu sveitarfélagi frá þeim tíma. Önnur sveitarfélög sem hafa bætt verulega við sig kvóta eru Grindavík, Snæfellsbær og Skagafjörður. Þeir sem tapað hafa á kvótakerfinu frá 1991-2011 eru Vestfirðir, mest byggðarlög í Ísafjarðarbæ, en einnig Bíldudalur, Hólmavík, Drangsnes og Súðavík. Þá hefur Fjarðabyggð fyrir austan, Sandgerði, Keflavík og Vopnafjörður tapað stórum hluta af sínum kvóta frá 1991.
Aflahlutdeild Reykjavíkur, Hafnarfjarðar, Akraness er samtals 22,4%, aflahlutdeild sveitarfélaga á Suðurnesjum er 13,7% og samtals gerir það rúmlega 36% af öllum kvóta á Íslandsmiðum.
...
Meira