Vísindaport í Háskólasetri aftur af stađ: Drengskapur á miđöldum
Skilningur á drengskaparreglum bardagamanna og hvernig þessar reglur leiðbeindu þeim í óreiðu, hávaða og sársauka orustunnar hjálpar okkur að skilja betur menningu og samfélaga fólks á miðöldum á Íslandi. Dr. Short er sjálfstætt starfandi fræðimaður og rithöfundur sem hefur sérhæft sig í íslensku miðaldasamfélagi. Flestar rannsóknir sínar hefur hann unnið við stríðsminjasafnið Higgins Armory Museum í Worcester í Massachusetts í Bandaríkjunum. Hann heldur reglulega fyrirlestra um vopn víkinga og hlutverk þeirra í samfélaginu á miðöldum, auk þess að sýna og kenna bardagaaðferðir frá þessum tíma. Nýjustu bækur Dr. Short eru Viking Weapons and Combat Techniques (2009) og Icelanders in the Viking Age (2010). Hann vinnur nú að annari bók þar sem hann sameinar áhuga sinn á Íslendingasögunum vopnum frá þessum tíma. Í bókinni verður sérstaklega fjallað um drengskaparreglur norrænna bardagamanna á miðöldum. Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu Williams.
Deila á Facebook
Skrifađu athugasemd:
ATH. IP talan ţín er 38.107.179.207 og er skráđ međ athugasemdinni.















