Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
26.01.2012 - 15:44

Vísindaport: Störf fréttamanna á vettvangi hörmunga

Frá snjóflóđinu á Flateyri í október 1995
Frá snjóflóđinu á Flateyri í október 1995

Fréttamennska við hörmungaraðstæður er viðfangsefni Sigríðar Guðfinnu Ásgeirsdóttur í Vísindaporti Háskólaseturs Vestfjarða, nú á föstudaginn klukkan 12.10.  Erindið er unnið upp úr mastersritgerð hennar í blaða- og fréttamennsku við félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands.  Í ritgerðinni er fjallað um störf fréttamanna við hörmungaraðstæður. Skoðað
var meðal annars hvort og þá hvernig hægt er að undirbúa og þjálfa fréttamenn fyrir slík störf, hvort skilningur ríkir á störfum þeirra í samfélaginu og hvaða áhrif það hefur á fréttamenn að starfa á vettvangi hörmunga. Í rannsókninni voru tekin viðtöl við fréttamenn sem störfuðu í Súðavík og á Flateyri í kjölfar snjóflóðanna árið 1995. Einnig var talað við heimamenn um þeirra sjónarmið gagnvart fjölmiðlum.  Allir eru velkomnir í Vísindaportið í kaffistofu Háskólaseturs á Ísafirði.


Samkvæmt rannsókninni hefur umræða erlendis um fréttamennsku í hörmungaraðstæðum verið að aukast og sjónum verið beint að því hvernig bæta megi umfjöllun um hörmungar á víðum grunni.

Sigríður er blaða- og fréttamaður að mennt. Hún lauk MA gráðu í blaða- og fréttamennsku frá Háskóla Íslands árið 2011 og BS gráðu í ferðamálafræði og viðbótarnám í Hagnýtri fjölmiðlun frá sama skóla árið 2003. Hún starfaði hjá Ríkisútvarpinu á Vestfjörðum á árunum 2003-2008.


Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.179.206 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón