Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
09.09.2010 - 07:28

Vinnsla hafin hjá Vísi á Ţingeyri - Jóhanna Gísladóttir ÍS landađi í gćr

Jóhanna Gísladóttir ÍS-7.  Mynd sax.is/ Pétur Ţór Lárusson
Jóhanna Gísladóttir ÍS-7. Mynd sax.is/ Pétur Ţór Lárusson
Jóhanna Gísladóttir ÍS-7, skip Vísis hf. í Grindavík, landaði afla sínum á Þingeyri í gær. Þar með hófst vinnsla í frystihúsi Vísis á Þingeyri nokkru fyrr en áætlað var.  Skutull sagði frá því í gær að starfsfólk hefði verið boðað til vinnu á mánudaginn, en nú hefur vinnunni verið flýtt.  Það var bb.is sem sagði frá þessu í gær.  Jóhanna Gísladóttir ÍS er skráð með heimahöfn á Þingeyri en er sjaldséð þar. Það er því gleðilegt að Vísismenn hafi nú látið bátinn landa í heimahöfn.

Vísir hf. er með höfuðstöðvar í Grindavík, en rekur auk þess fiskvinnslu á Húsavík og Djúpavogi, auk Þingeyrar.  Fyrirtækið gerir út fimm línu- og netabáta: Fjölni SU-57, Jóhönnu Gísladóttur ÍS-7, Kristínu ÞH-157, Pál Jónsson GK-7 og Sighvat GK-57. Bátarnir landa oftast í Grindavík, en oft á Austfjörðum eða þar sem þeir stunda veiðar í hvert sinn. Aflanum er dreift á vinnslustöðvar fyrirtækisins með flutningabílum.
Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.179.210 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón