Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
17.04.2011 - 14:30

Vindur í seglum: Fyrsta bindi sögu verkalýđshreyfingar á Vestfjörđum komiđ út

Vindur í seglum. Saga verkalýđshreyfingar á Vestfjörđum 1. bindi, 1890-1930
Vindur í seglum. Saga verkalýđshreyfingar á Vestfjörđum 1. bindi, 1890-1930
Fyrsta bindi sögu verkalýðshreyfingar á Vestfjörðum er komin út. Nefnist hún Vindur í seglum og nær yfir tímabilið 1890-1930.  Höfundur bókarinnar er Sigurður Pétursson sagnfræðingur, Alþýðusamband Vestfjarða gefur út í samstarfi við Bókaútgáfun Skruddu.  Bókin er rúmlega 500 síður, prýdd miklum fjölda ljósmynda, sem margar hafa ekki sést opinberlega fyrr.  Hún skiptist í þrjá hluta sem nefnast: Nýtt samfélag 1870 - 1910, Ný viðhorf, ný viðmið: Ísafjörður 1910 - 1923 og Uppbygging og útbreiðsla 1923 - 1930. Þar er dregin upp glögg mynd af vestfirsku samfélagi á tímabilinu og hraðri þróun þess, bæði vegna framfara í tækni og verkmenningu og ekki síður vegna nýrra hugmynda í þjóðfélagsmálum. Bókin fæst á skrifstofu Verk Vest á Ísafirði og hægt er að panta hana í postur@verkvest.is.

Á heimasíðu Verk Vest segir í tilefni af útkomu bókarinnar: „Eins og kunnugt er hefur Sigurður Pétursson sagnfræðingur unnið að því undanfarin ár að koma upp skjalasafni verkalýðshreyfingarinnar á Vestfjörðum og rita sögu hennar. Nú er 1. bindi sögunnar komið úr prentun og nefnist það Vindur í seglum. Þar er fjallað um tímabilið 1890 - 1930. Sagt er frá fyrstu verkalýðsfélögiunum sem spruttu upp úr þessum jarðvegi og baráttu félagsmanna við harðsnúið vald atvinnurekenda. Framan af miðaði hægt, stundum varð félögunum aflfátt í viðureign við andstæðinga sem höfðu öll ráð verkafólksins í hendi sér, en með tímanum óx hreyfingunni ásmegin. Með óbilandi staðfestu, hugsjónaeld, og áreiðanlega vænan skammt af vestfirskri þrjósku að vopni unnu frumherjarnir jafnt og þétt á og í bókarlok hefur ekki aðeins verkalýðshreyfingin náð öruggri fótfestu; hugsjónir jafnaðarmanna hafa einnig rutt sér til rúms á hinu pólitíska sviði og Ísafjörður er orðinn "rauði bærinn".


Menningarráð Vestfjarða, Þjóðhátíðarsjóður, Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar og Múrarafélag Ísafjarðar styrktu útgáfuna.

 


Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.179.209 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón