Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
27.01.2012 - 07:45

Vesturbyggđ samţykkir framkvćmdaleyfi fyrir vegagerđ í Múlasveit

Nýi vegurinn um Múlasveit í Barđastrandarsýslu
Nýi vegurinn um Múlasveit í Barđastrandarsýslu
Bæjarráð Vesturbyggðar hefur samþykkt að veita Vegagerðinni framkvæmdaleyfi til vegagerðar á Vestfjarðavegi um Barðastrandarsýslu á milli Eiðis í Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði, á þeim kafla sem er innan marka Vesturbyggðar.  Það er kaflinn frá Þverá í Kjálkafirði og í Kerlingafjörð.  Nýi vegurinn mun fylgja núverandi vegstæði eins og kostur er, en vegna krappra beygja yfir Eiðið milli Vattarfjarðar og Kerlingarfjarðar, fyrir Litlanes, í botni Mjóafjarðar og í botni Kjálkafjarðar, þarf að víkja út frá núverandi vegi til að uppfylla öryggisreglur.  Miðað er við að þvera bæði Kjálkafjörð og Mjóafjörð til að stytta leiðir og forðast snjóþunga kafla.  Athugasemdir hafa verið gerðar við fyrirhugaðar þveranir og vegkafla um Litlanes og Skipulagsstofnun komst að þeirri niðurstöðu að áhrif framkvæmdarinnar yrðu neikvæð. Þrátt fyrir það fór Vegagerðin fram á að sveitarfélögin Vesturbyggð og Reykhólahreppur veittu henni framkvæmdaleyfi. Nú hefur Vesturbyggð orðið við því. 

 


Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.179.209 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón