Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
31.08.2010 - 11:35

Tónlistarskóli Ísafjarđar settur í 63. sinn

Stúlknakór syngur á Hömrum. Mynd Ágúst Atlason
Stúlknakór syngur á Hömrum. Mynd Ágúst Atlason
Tónlistarskóli Ísafjarðar verður settur í 63.sinn í dag klukkan 18.00 í tónlistarsalnum Hömrum.  Sigríður Ragnarsdóttir skólastjóri segir frá innritun og vetrarstarfinu og Hulda Bragadóttir aðstoðarskólastjóri flytur hugleiðingu.  Þá mun Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir, sem útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands síðasta vor leika á harmónikku.  Allir nemendur, foreldrar og velunnarar skólans eru hvattir til að mæta.

Innritun í Tónlistarskólann hefur staðið undanfarna daga. Skólinn starfar á Ísafirði, Flateyri, Suðureyri og Þingeyri.  Kennt er á píanó og harmóníku, fiðlu og selló, gítar, rafgítar, bassa og slagverk, blokkflautur, þverflautu, klarinett, saxófón, trompet, básúnu, horn auk einsöngs. Þá eru kenndar ýmsar tónfræðigreinar, tónfræði, hljómfræði, tónheyrn og tónlistarsaga.  Á síðasta ári voru nemendur nær  nær 300, auk þeirra sem eingöngu tóku þátt í kór eða lúðrasveitum skólans.  Kennarar voru 22 talsins af ýmsum þjóðernum.  Tónlistarskóli Ísafjarðar er einn af elstu tónlistarskólum landsins. Hann var stofnaður árið 1948 að tilhlutan Tónlistarfélags Ísafjarðar og þó einkum fyrir frumkvæði Jónasar Tómassonar, tónskálds, organista og bóksala á Ísafirði. 

 


Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.179.207 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón