30.07.2010 - 11:30
Sorpútboð Vesturbyggðar og Tálknafjarðar ógilt: Samningur við Gámaþjónustuna felldur úr gildi
Sorpútboð sem sveitarfélögin Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur létu fara fram í vetur var dæmt ógilt af Kærunefnd útboðsmála. Samningur sveitarfélaganna við Gámaþjónustuna hf. um sorphirðu er því felldur úr gildi. Kærunefndin felldi þennan úrskurð vegna þess að sveitarfélögunum væri óheimilt að meta tilboð út frá öðrum forsendum en verði einu saman. Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpssins í morgun.
Það var Íslenska gámafélagið sem kærði samninginn. Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur buðu út sorphirðu- og förgun snemma í vetur. Mörg frávikstilboð bárust. Þegar tilboð voru opnuð í mars, var tilboði Gámaþjónustunnar tekið á grundvelli þriggja matsþátta. Íslenska gámafélagið kærði, því samkvæmt lögum má ekki meta tilboð út frá öðrum þáttum en verði, nema matsaðferðin sé tíunduð rækilega í útboðinu. Það virðist ekki hafa verið gert. Auk þess að samningurinn var ógiltur voru sveitarfélögin dæmd til að greiða Íslenska gámafélaginu tæpa hálfa milljón í málskostnað. Vesturbyggð og Tálknafjörður eru með samning sem gildir út árið og felur í sér flutning á sorpi til Ísafjarðar í brennslustöðina Funa. Nýjum sveitarstjórnum í Vestur-Barðastrandarsýslu gefst því ráðrúm til að endurskoða sín mál fram að áramótum. Áður hefur komið fram að sorpmál í Ísafjarðarbæ eru í endurskoðun, sem tekið hefur meira en heilt ár, án þess að niðurstaða sé fengin.
Deila á Facebook

Skrifaðu athugasemd:
ATH. IP talan þín er 38.107.179.210 og er skráð með athugasemdinni.

Sorpaksturinn þvers og kruss um firðina mengar meir en Funi. Amk meðan notast er við bíla með díeselvélum, Sorpinu á að eyða þar sem það verður til, hætta þessu keyrslu rugli. Fólk ætti að kaupa sér gamaldags mjólkurbrúsa, sturta í hann úr fernunum í Bónus, láta þá um að farga umbúðum sem þeir selja........................