Landsmálavefur á Vestfjörðum | skutull@skutull.is
03.09.2010 - 09:25

Sorpmálin í Ísafjarðarbæ loksins í útboð

Hreint og tært loft í fallegum firði. Það er það sem við viljum. Mynd Ágúst Atlason
Hreint og tært loft í fallegum firði. Það er það sem við viljum. Mynd Ágúst Atlason
Mikilvægum áfanga í sorpmálum Ísafjarðarbæjar var náð í gær þegar samþykkt var í bæjarstjórn að bjóða út sorphirðu, urðun og förgun í bænum. Tekin var fyrir tillaga nefndar um sorpmál sem laut að útboði sorphirðu og sorpförgunar, en nefndin hefur
lagt á það áherslu við gerð útboðsgagna að náð verði fram aukinni flokkun, hagkvæmni, endurvinnslu og endurnýtingu.  Bæjarfulltrúar Í-listans í Ísafjarðarbæ lögðu fram bókun, þar sem lagt var til að útboðinu yrði skipt í tvo hluta, annarsvegar sorphirðu og hinsvegar urðun og förgun, þar sem með því væri meiri möguleiki á að verktakar í héraði geti tekið þátt í útboðinu.


Sorpmál Ísafjarðarbæjar hafa verið talsvert í umræðunni á síðustu árum. Ljóst er að gera þarf talsverðar endurbætur á sorpbrennslustöðinni Funa í Engidal eigi að reka hana áfram. Þá verða flokkun, endurnýting, jarðgerð og þess háttar förgun hátt metin við mat á tilboðum.  Í tilkynningu frá Ísafjarðarbæ er vonast til að með þessari ákvörðun verði stórt skref stigið í þá átt að eyða óvissu sem ríkt hefur í sorpmálum Ísafjarðarbæjar um árabil og að flokkun og endurvinnsla verði stóraukin í framtíðinni í samráði og samstarfi við íbúa bæjarins.

 


Deila á Facebook
#1
03.09.2010 kl: 10:14
Halldór P skrifar:

Sorpinu á að eyða þar sem það verður til! Góð byrjun væri að fá sér gamaldags mjólkurbrúsa og sturta úr fernunum í hann við verslunina, láta hana síðan hafa umbúðirnar tilbaka. Akstur sorpbílanna veldur mikilli mengun, auk þess sem þeir ögra umferðinni verulega sökum stærðar.

Skrifaðu athugasemd:

ATH. IP talan þín er 38.107.179.206 og er skráð með athugasemdinni.


Vefumsjón