11.03.2010 - 14:53
Söngtónleikar Sólveigar Samúelsdóttur og Hallveigar Rúnarsdóttur í Hömrum 17. mars
Tónleikar verða í Hömrum miðvikudagskvöldið 17.mars kl. 20:00. Fram koma söngkonurnar Sólveig Samúelsdóttir og Hallveig Rúnarsdóttir ásamt píanóleikaranum Hrönn Þráinsdóttur. Á tónleikunum verða flutt einsöngslög og dúettar eftir Schumann og Mendelssohn. Tónleikarnir eru 3.áskriftartónleikar Tónlistarfélagsins á starfsárinu.
Sólveig Samúelsdóttir er Ísfirðingur að ætt og uppruna. Föðurforeldrar hennar bjuggu á Bjargi. Hún stundaði söngnám við Listaháskóla Íslands hjá Elísabetu Erlingsdóttur og lauk þaðan B.Mus. gráðu í einsöng 2005 og kennsluréttindanámi 2006. Að því loknu sótti hún einkatíma hjá prof. Giovanna Canetti í Mílanó á Ítalíu. Sólveig hefur sótt meistaranámskeið í söng hjá m.a. Joy Mammen, Galinu Pisarenko, Dalton Baldwin og Kiri Te Kanawa. Hún hefur sungið í óperuuppfærslum hjá Óperustúdíói Íslensku Óperunnar, nú síðast hlutverk Dorabellu í Cosí fan tutte eftir Mozart. Þá kemur hún reglulega fram sem einsöngvari á tónleikum. Sólveig hefur sungið með Schola Cantorum síðan 2007 og flutt með þeim margvíslega tónlist innanlands sem utan og tekið þátt í upptökum, m.a. á tónleikum með Björk. Sólveig hefur auk þess ljáð Disney teiknimyndum rödd sína. Árið 2005 gaf Sólveig út hljómplötuna Melodia. Þar syngur hún ljúfa tónlist eftir meistara kvikmyndatónlistar í útsetningum bróður síns Samúels Jóns Samúelssonar.
Hallveig Rúnarsdóttir hóf söngnám hjá Sigurði Demetz árið 1991. Hún lauk 8. stigi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík undir handleiðslu Rutar L. Magnússon árið 1998. Það sama ár hóf hún nám hjá Theresu E. Goble við Guildhall School of Music and Drama í London og útskrifaðist þaðan með láði sumarið 2001. Meðal hlutverka Hallveigar eru Fiordiligi í Cosi fan tutte eftir W.A. Mozart, Jane í Happy End eftir Kurt Weill, Servilia í La Clemenza di Tito eftir W. A. Mozart og Echo í óperunni Ariadne auf Naxos eftir Richard Strauss. Hallveig hefur komið fram sem einsöngvari víða um heim, er virkur óratóríusöngvari hér á landi og víðar og hefur einnig lagt áherslu á flutning barrokk og endurreisnartónlistar. Hún er einn af stofnendum kammerhópsins Rinascente. Hallveig hefur einnig haldið fjölda einsöngstónleika á Íslandi undanfarin ár þar sem hún hefur lagt áherslu á ljóðasöng.
Deila á Facebook

Skrifaðu athugasemd:
ATH. IP talan þín er 38.107.179.206 og er skráð með athugasemdinni.