Landsmálavefur á Vestfjörðum | skutull@skutull.is
03.09.2010 - 07:18

Skuldir sveitarfélaga valda áhyggjum - Ísafjarðarbær sleppur fyrir horn

Skuldir sveitarfélaga eru áhyggjuefni
Skuldir sveitarfélaga eru áhyggjuefni

Skuldir Ísafjarðarbæjar og skuldbingingar eru 149% af árlegum tekjum bæjarins, samkvæmt yfirliti sem Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur sent frá sér.  Í yfirliti nefndarinnar kemur fram að skuldsettustu sveitarfélög landsins eru Álftanes með fimmfaldar skuldir á við árlegar tekjur, Reykjanesbær og Vogar með fjórfaldar skuldir á við tekjur. Þá koma Sandgerðisbær og Fjarðabyggð með þrefaldar skuldir á við tekjur.  Af sveitarfélögum með eitt þúsund íbúa og fleiri koma Grundarfjörður, Hafnarfjörður, Fljótsdalshérað og Kópavogur næst með skuldir sem nema 230-260% af tekjum, þá Vestmanneyjar, Djúpavogur, Árborg og Stykkishólmur með hutfallið um 200%.  Ellefu sveitarfélög eru með skuldir á bilinu 190-149% þar sem Ísafjarðarbær er staðsettur.  Sveitarfélög sem skulda 150% af tekjum og meira fá öll viðvörunarbréf frá Eftirlitsnefndinni. Það má því segja að Ísafjarðarbær sleppi fyrir horn.  Fréttatilkynningu eftirlitsnefndarinnar má sjá á netinu.


Deila á Facebook

Skrifaðu athugasemd:

ATH. IP talan þín er 38.107.179.206 og er skráð með athugasemdinni.


Vefumsjón