Sjávarţorpiđ Suđureyri og Framfarafélag Flateyjar fá styrki úr framkvćmdajóđi ferđamannastađa
Fram kemur á vef Iðnaðarráðuneytis að þrjú verkefni á Vestfjörðum fá styrk. Framfarafélag Flateyjar fær 2.000.000 krónur til til stígagerðar, hönnunar og uppsetningar upplýsingaskilta og merkinga í Flatey á Breiðafirði. Þá fær Þrísker ehf. 2.500.000 krónur til að ljúka viðgerð á þaki og ytra byrði gamla Frystihússins í Flatey. Þriðji styrkinn til Vestfjarða fær Sjávarþorpið Suðureyri ehf., 1.500.000 krónur, til að bæta aðgengi að lóninu á Suðureyri, fyrir hönnun og efniskostnaði á bryggju, grjótvarnargarði, uppfyllingu og stíg samkvæmt fyrirliggjandi deiliskipulagi.
Verkefnin sem hljóta styrki eru fjölbreytt og kennir þar ýmissa grasa. Öll eiga þau þó það sameiginlegt að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða í opinberri eigu eða umsjón um land allt. Þriðjungur styrkþega fékk þá upphæð sem þeir sóttu um, en aðrir fengu styrk til ákveðinna verkþátta og eru styrkupphæðirnar á bilinu 250 þúsund til 5 milljóna króna. Hæstu styrkina fá Umhverfisstofnun vegna hönnunarsamkeppni um Gullfosssvæðið, Rangárþing ytra til að vinna samræmt ramma‐ eða svæðisskipulag fyrir Fjallabakssvæðið og Rangárþing eystra vegna framkvæmda við nýjan útsýnispall við Skógafoss.
Deila á Facebook
Skrifađu athugasemd:
ATH. IP talan ţín er 38.107.179.207 og er skráđ međ athugasemdinni.















