Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
07.09.2010 - 09:20

Sirrý ÍS-84 landađi 1729 tonnum á síđasta fiskveiđiári: Trúlega heimsmet

Sirrý ÍS 84 frá Bolungarvík.  Mynd Jón Einar Snorrason
Sirrý ÍS 84 frá Bolungarvík. Mynd Jón Einar Snorrason
Sirrý ÍS-84 frá Bolungarvík landaði 1729 tonnum á síðasta fiskveiðiári. Það er líklega heimsmet í aflabrögðum á smábáti.  Sirrý er fimmtán tonna línubátur smíðaður 2004 í eigu Jakobs Valgeirs ehf.  Skipstjóri á Sirrý er Sigurgeir S. Þórarinsson. Báturinn fór 297 róðra á síðasta fiskveiðiári. Á því sést að ekki var slegið slöku við og gæftir voru góðar á árinu.  Þrír menn skipa þær tvær stöður sem eru um borð, vinnur hver í fjóra daga og tekur svo tveggja daga frí.  Auk þess eru átta landmenn sem beita línuna. Afli Sirrýjar er mest þorskur og ýsa sem fer til vinnslu í frystihúsi Jakobs Valgeirs ehf. í Bolungarvík.  Aflaverðmæti Sirrýjar á almanaksárinu 2009 var 269 milljónir króna.


Eldra met í aflabrögðum smábáta átti Guðmundur Einarsson ÍS sem líka er í eigu Jakobs Valgeirs ehf. Guðmundur Einarsson landaði 1.500 tonnum á fiskveiðiárinu 2005/2006.  Samnefndur skipstjóri hefur lengi verið með Guðmund og oft verið aflahæstur á landinu í flokki smábáta. Á síðasta fiskveiðiári landaði Guðmundur Einarsson um 1600 tonnum.


Í samtali við Fréttablaðið þakkar Sigurgeir skipstjóri á Sirrý ÍS hinn mikla afla góðu fólki, bæði til sjós og lands. „Við erum góðir í bakinu, má segja," segir hann. Um það hvort hann stefni að því að slá metið segir hann: „Nú vita þessir karlar að hverju er að stefna. Ég slæ þetta met alla vega ekki sjálfur."


Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.179.210 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón