08.09.2010 - 15:34
Síminn ćtlar ađ hćkka verđskrána um nćstu mánađarmót
Síminn hækkar verð á þjónustu sinni frá og með 1. október um 4,5% miðað við meðalnotkun heimilis. Verðbreytingarnar má finna á töflu á heimasíðu Símans. Þar eru tilgreindar hinar fjölbreytilegustu gjaldskrárhækkanir. Sjá má að grunnáskrift að internetinu hækkar úr 3050 krónum í 3200 krónur, sem er 4,9% hækkun. Grunnáskrift heimasíma hækkar aðeins um rúmlega tvö prósent, úr 1665 krónum í 1700 krónur á mánuði. Þegar kemur að GSM-símtölum verður gjaldskráin líkt og frumskógur, en ljóst er að allir liðir hækka, hvort heldur er GSM-frelsi, ring, tveir vinir eða hvað það heitir. Upphafsgjald GSM-símtala hækkar úr 5,95 í 6,50 kr. í öllum kerfum, sem er 9,2% hækkun, en gjald fyrir algengt símtal í GSM-áskrift innan kerfa Símans hækkar úr 12,00 í 12,60 kr. sem er 5% hækkun. Símtöl í önnur farsímafyrirtæki eru dýrari.
Í frétt á heimasíðu Símans segir að verð á símtölum úr heimasíma í alla farsíma hafi lækkað frá 1. september og einnig úr farsíma í farsíma í öðrum kerfum. Lækkunin er í þeim þjónustuleiðum sem eru með breytilega verðskrá fyrir hverja mínútu. Þá fer nú fyrst málið að verða óskiljanlegt. Þetta má sjá á heimasíðu Símans og það er fréttavefurinn litlihjalli.is sem vakti athygli okkar á fréttinni.
Síminn segir að undanfarin misseri hafi verðhækkunum verið haldið í lágmarki þrátt fyrir þá verðlagsþróun sem átt hefur sér stað í þjóðfélaginu. Þegar litið er til síðustu 24 mánuða hefur vísitala neysluverðs hækkað um 16,7%, verð á bensíni hækkað um 14,9%, áskriftir að helstu fjölmiðlum hafa hækkað um 21,9% og verð á áfengi og tóbaki um 44,6%, svo dæmi séu tekin. Á sama tímabili hefur þjónusta Símans, með verðbreytingunni sem tekur gildi 1.október, hækkað um 13,8%. Viðskiptavinum Símans er bent á að hafa samband í síma 8007000 til þess að kynna sér hagstæðar þjónustuleiðir sem henta símnotkun hvers og eins.
Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:
ATH. IP talan ţín er 38.107.179.209 og er skráđ međ athugasemdinni.