Samgönguráðuneytið styrkti kosningabaráttu Sjálfstæðisfélaganna í Ísafjarðarbæjar
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Ísafjarðarbæ hefur svarað áskorun bæjarstjórnar um að birta hverjir styrktu kosningabaráttu flokksins í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Skutull.is hefur undir höndum eintak af bréfinu, þar kemur fram að Sjálfstæðisflokkurinn í Ísafjarðabæ fékk í styrki frá fyrirtækjum og stofnunum að upphæð kr. 1.340.000. Athygli vekur að meðal styrktaraðila kosningabaráttu Sjálfstæðisflokks er Samgönguráðuneytið.
Árið 2006 var Samgönguráðuneytið undir stjórn Sjálfstæðisflokks í ríkistjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Ráðherra var Sturla Böðvarsson. Sjálfstæðisflokkurinn á Ísafirði hlaut kr. 100.000 í styrk frá ráðuneytinu. Níels R. Björnsson, sem ritar undir bréfið sem sent var til Ísafjarðarbæjar vildi ekki tjá sig um málið þegar skutull.is hafði samband við hann. Niels gaf þá ástæðu að hann væri "mjög upptekinn" auk þess sem frá þessu verði greint á fundi bæjarráðs.
Í fyrirspurn til samgönguráðuneytis kom fram að ekki sé hefð fyrir því að styrkja kosningabaráttu stjórnmálaflokka. Skutull.is hefur lagt fram beiðni til samgönguráðuneytis um styrkveitingar úr ráðstöfunarfé ráðherra, í tíð Sturlu Böðvarssonar.
Umboðsmaður alþingis hefur nokkrum sinnum gert athugasemd við úthlutun á almannafé úr ráðstöfunarfé ráðherra, sem í daglegu tali er kallað skúffufé ráðherra. Í athugasemdum umboðsmans kemur fram skortur sé á reglum um úthlutun á þessu fé.
Deila á Facebook
Þú ættir nú að vita það Sigurður ný genginn í flokkinn !
Sæll Jónas Ólafur.
Ég gekk jafnharðan úr honum.Ég gekk í hann um stundarsakir til að kjósa Eirík Finn í fyrsta sæti.
kv sigurður J Hafberg stuðningsmaður Í lista
Heill og sæll, Sigurður Hafberg!
Við viljum ekki formann frímúraranna til áhrifa í bæjarstjórn. Það er málið, svo einfalt er það!
Skrifaðu athugasemd:
ATH. IP talan þín er 38.107.179.210 og er skráð með athugasemdinni.
















það er gott að eiga góða að.