Sameining heilbrigðisstofnana í Ísafjarðarbæ og í Bolungarvík gagnrýnd
Í grein þeirra Huldu, Írisar og Sigrúnar Gerðu segir: „Sameining Heilbr.st. Bolungarvíkur og Heilbr.st. Ísafjarðar var liður í stefnu heilbrigðisyfirvalda til að styrkja þjónustu og stjórnunarhætti beggja stofnanna í því augnamiði að ná fram hagræðingu. Því miður er reyndin sú að um beina yfirtöku var að ræða af hálfu Heilbr.st Ísafjarðar. Sameiningin fór í gegn án nokkurs samráðs við starfsfólk Heilbr.st. Bolungarvíkur.“ Nefna þær nokkur atriði um skerta þjónustu:
1.Viðvera læknis á heilsugæslu minnkar a.m.k. um 25%. Samningur við núverandi heilsugæslulæknir gildir fram að opnun ganganna og þar með verður ekki lengur fastur heimilislæknir í Bolungarvík.
2. Viðvera læknis á sjúkraskýli minnkar um 75%.
3. Viðvera ritara minnkar um 50%.
4. Staða hjúkrunarfræðings er í algerri óvissu, var 100% en er sem stendur 10% eða sem samsvarar tveimur til fjórum tímum á viku.
5. Læknavakt flyst alfarið á Ísafjörð.
Þá nefna þær einnig að ein af hagræðingarráðstöfunum framkvæmdanefndarinnar var að leggja niður bakvaktir hjúkrunarfræðings á hjúkrunardeildinni og að sameina skólahjúkrun í Grunnskólum Ísafjarðarbæjar og Bolungarvíkur. Allt þetta telja þær að skapi óöryggi og óvissu og rýri traust á heilbrigðisþjónustunni.
Niðurstaða starfsmanna heilsugæslunnar í Bolungarvík er: „Af framantöldu metum við undirritaðar að sameining þessara tveggja stofnana hafi hvorki verið samkvæmt lögum né skilað betri og markvissari þjónustu fyrir Bolvíkinga. Okkur er ljóst að endurmeta þarf forgangsröðun í heilbrigðismálum í Bolungarvík sem og annars staðar á landinu, en núverandi breytingar þýða að í raun er verið að leggja heilsugæslustöðina niður og koma á sambærilegu þjónustustigi og á heilsugæsluselunum á Flateyri, Súðavík, Þingeyri og Suðureyri. Þetta er óásættanlegt. ...
Við teljum að bæjarfélagið Bolungarvík sé fullfært um að bera ábyrgð á rekstri heilsugæslu og hjúkrunardeildar í bænum.
Það myndi auka hagkvæmni að samhæfa félagsþjónustu aldraðra og fatlaðra við rekstur heilsugæslu og hjúkrunardeildar. Ákvarðanataka um heilbrigðismál yrði færð nær íbúum bæjarfélagsins og skjólstæðingum stofnanna. Þessi tillaga myndi tryggja heilbrigðisþjónustu sem veitt yrði af heilsugæslulækni, hjúkrunarfræðing og sjúkraliða. Hvetjum við því heilbrigðis- og félagsmálayfirvöld, sem og bæjarstjórn Bolungavíkur, til að breyta núverandi fyrirkomulagi og fella í stað þennan málaflokk undir bæjarfélagið sjálft.“
Deila á Facebook
Skrifaðu athugasemd:
ATH. IP talan þín er 38.107.179.206 og er skráð með athugasemdinni.
















Það verður engin læknaður með prósentum %, hvorki í Bolungarvík né á Ísafirði. Skurðlæknirinn stendur alltaf bakvaktina 100%, það er ekkert að óttast.