Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
31.01.2012 - 09:43

Sam-Vest keppni félagsmiđstöđva verđur 10. febrúar

Agnes Sólmundsdóttir frá Ţingeyri sigrađi í Samvest í fyrra. Mynd strandir.is
Agnes Sólmundsdóttir frá Ţingeyri sigrađi í Samvest í fyrra. Mynd strandir.is

Sam-Vest hæfileikakeppni félagsmiðstöðvanna, sem ekki tókst að halda síðasta föstudagskvöld vegna veðurs, hefur verið frestað til 10. febrúar vegna fjölda áskorana.  Fyrirhugað var að keppnin færi fram næsta föstudag, en þar sem óvenjumargt er í gangi þetta kvöld hjá ungmennum í Ísafjarðarbæ, árshátíð Menntaskólans, fótboltamót, skíðamót, handboltamót, og útilega hjá Björgunarsveit Ísafjarðar, óskaði félagsmiðstöðin Djúpið á ísafirði eftir að atburðinum yrði frestað enn frekar. Keppnishaldarar í Súðavík voru einstaklega skilningsríkir á þessa bón og gerðu allt til að geta orðið við þessari ósk. Keppnin hefur því verið sett á 10. febrúar.


Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.179.206 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón