Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
21.02.2012 - 12:26

Rokksöngleikurinn Andaglasiđ frumsýndur í Bolungarvík annađ kvöld

Félagsheimiliđ í Bolungarvík. Mynd vikari.is
Félagsheimiliđ í Bolungarvík. Mynd vikari.is
Rokksöngleikurinn Andaglasið verður frumsýndur í Félagsheimili Bolungarvíkur á Öskudag, miðvikudaginn 22. febrúar, klukkan 20. Verkið er samið af Elfari Loga Hannessyni leikstjóra og Guðmundi Hjaltasyni tónlistarmanni og er fyrsta verkefni nýstofnaðs leikhúss sem ber nafnið Vestfirska skemmtifélagið. Hér er á ferðinni rokkað stykki fyrir alla fjölskylduna þar sem tröll, álfar, galdramenn og aðrar verur vestfirska þjóðsagnaheimsins koma við sögu. Tónlistin í Andaglasinu er eftir Guðmund Hjaltason og Eggert Einer Nielson. Næstu sýningar verða laugardaginn 25. febrúar kl. 16:00 og sunnudaginn 26. febrúar kl. 16:00. Miðapantanir eru í síma 892-4568 og er miðaverð kr. 1.500. Verkið styrkt af Menningarráði Vestfjarða.
Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.179.210 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón