Landsmálavefur á Vestfjörðum | skutull@skutull.is
22.02.2010 - 16:16

Prófkjör Í - listans: Kosningin hafin í Aðalstræti 24 á Ísafirði

Frambjóðendur í prófkjöri Í - listans
Frambjóðendur í prófkjöri Í - listans

Kosning í prófkjöri Í - listans í Ísafjarðarbæ fer fram í Aðalstræti 24 á Ísafirði á milli klukkan 16.00 og 18.00 frá mánudeginum 22. febrúar til og með föstudeginum 26 febrúar, fyrir þá sem ekki komast til að kjósa á laugardaginn.  Utan þess tíma verður hægt að kjósa utan kjörstaðar hjá formanni kjörstjórnar Smára Haraldssyni.  Síminn hjá honum er 862 4017.

Prófkjörið sjálft fer fram á laugardaginn 27. febrúar 2010 verður kosið í Félagsheimilinu á Þingeyri, í Félagsbæ á Flateyri, í Bjarnaborg á Suðureyri og Aðalstræti 24 á Ísafirði.  Á kjördag verða kjördeildir á Þingeyri, Flateyri og Suðureyri opnar kl. 10 - 16, en kl. 10 - 18 á Ísafirði. Kjósendur geta valið í hvaða kjördeild þeir kjósa, þ.e. þeir þurfa ekki endilega að kjósa þar sem þeir búa.


Prófkjöri Í-listans laugardaginn 27. febrúar 2010, er öllum íbúum Ísafjarðarbæjar sem hafa kosningarétt laugardaginn 29. maí 2010 og ekki eru skráðir í aðra flokka sem bjóða fram í sveitarfélaginu, heimilt að kjósa. Þeir sem taka þátt í kosningunni skulu rita nafn sitt og kennitölu á yfirlýsingu til stuðnings framboðinu. 


Deila á Facebook
#1
22.02.2010 kl: 22:20
Glúmur skrifar:

Ekki bara Í listann! -------- Okkur er farið að leiðast í fréttir af Gísla og Guðfinnu, komin meir en vika. Kannski þau ætli saman fram með lista...........?

Skrifaðu athugasemd:

ATH. IP talan þín er 38.107.179.210 og er skráð með athugasemdinni.


Vefumsjón