Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
08.09.2010 - 09:10

Ótryggt atvinnuástand á Ţingeyri: Vísir hf. byrjar vinnslu eftir fjórtán vikna stopp

Frá Ţingeyri.  Mynd Ágúst Atlason
Frá Ţingeyri. Mynd Ágúst Atlason
Forráðamenn fiskvinnslu Vísis hf. á Þingeyri hafa tilkynnt starfsmönnum að vinnsla hefjist að nýju í frystihúsinu mánudaginn 13. september eftir fjórtán vikna vinnslustopp.  Vísir hf. lokaði vinnslunni á Þingeyri hinn 1. júní og gaf upp hráefnisskort sem ástæðu.  Það er eitt kvótahæsta fyrirtæki landsins, Vísir hf. i Grindavík, sem rekur fiskvinnsluna á Þingeyri.  Vísir hf. er langstærsti atvinnurekandi á Þingeyri.  Þar störfuðu 25-30 manns síðasta vetur og fóru starfsmenn á atvinnuleysisskrá í sumar.  Síðasta vetur var vinna dregin saman í fiskvinnslunni og fengu flestir starfsmenn aðeins 80% starfshlutfall eftir áramót.  Ekki er vitað hve mikil vinna verður nú þegar vinnslan fer aftur af stað.
Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.179.206 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón