26.08.2010 - 09:35
Opnunartími sundlauga Ísafjarðarbæjar í vetur
Vetraropnun sundlauga í Ísafjarðarbæ hefur tekið gildi. Grunnskólarnir eru byrjaðir og það hefur áhrif á opnunartímann, sérstaklega í Sundhöll Ísafjarðar. Opnunartími lauganna verður rýmri á öllum stöðum heldur en hann var í fyrravetur og verður nú samtals næstum 105 stundir, en var 86 stundir í fyrra. Þannig verður opið alla morgna á Þingeyri en lokað tvo daga á Flateyri og Suðureyri. Sundlaugar Ísafjarðarbæjar eru fjórar, á Ísafirði, Suðureyri, Flateyri og Þingeyri. Opnunartíminn í vetur verður sem hér segir:
Deila á Facebook
Sundhöll Ísafjarðar
Mán-fös: 07:00-08:00 og 19:00-21:30
Lau-sun: 10:00-17:00
Flateyrarlaug
Mán, fim: 16.00-19.00
Þri: 16.00-21.00
Lau: 13.00-18.00
Sun: 11.00-14.00
Mið, fös: Lokað
Þingeyrarlaug
Mán, þri, mið: 08.15-11:30 og 16:00-19:30
Fim: 08.15-11.30 og 16:00-21:00
Fös: 08.15-09.00
Lau: 10.00-13.00
Sun: 11.00-15.00
Suðureyrarlaug
Þri, mið, fim: 16:00-19:00
Lau: 10:00-14:00
Sun: 13:00-18:00
Mán, fös: Lokað
Deila á Facebook
Skrifaðu athugasemd:
ATH. IP talan þín er 38.107.179.209 og er skráð með athugasemdinni.
















Fyrir hverja er sundlaugin á Ísafirði? Almenning eða sundkrakkana í Vestra? Það þekkist hvergi nema á Ísafirði að almenningur sé látinn mæta afgangi, þegar opnunartímar sundlauga eru ákveðnir. Í ofanálag greiðir Vestra ekkert fyrir afnot af lauginni, en það er annað mál.