Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
08.09.2010 - 10:55

Ólína Ţorvarđardóttir: Skýrslan er áfangi en ekki lokaniđurstađa. Nú ţarf ađ vinna máliđ pólitískt

Ólína Ţorvarđardóttir alţingismađur
Ólína Ţorvarđardóttir alţingismađur
Ólína Þorvarðardóttir alþingismaður og varaformaður sjávarútvegsnefndar Alþingis segir að skýrsla nefndar um endurskoðun fiskveiðistjórnunar sé áfangi en augljóslega ekki lokaniðurstaða málsins. Nú þurfi að taka málið og vinna það til fullnustu á pólitískum vettvangi.  „Nú reynir á hvort stjórnvöld hafa þann pólitíska kjark sem til þarf að fullnusta málið með þeim hætti að þjóðin (ekki bara hagsmunaaðilar í greininni) uni sátt við niðurstöðuna,“ segir Ólína á bloggi sínu á Eyjunni. Með störfum nefndarinnar sé búið að uppfylla loforð ríkisstjórnarflokkanna um víðtækt samráð.

Ólína segir að bæði samningaleið og tilboðsleið, sem nefndar eru í skýrslunni geri ráð fyrir innköllun aflaheimilda á einu bretti og síðan einhverskonar samningum um endurúthlutun til tiltekins tíma. „Samningaleiðin er verr útfærð en tilboðsleiðin sem felur í sér ákveðna útfærslu, m.a. á verðmyndun kvótans og hvernig með skuli farið við endurúthlutunina. Samningaleiðin felur auk þess í sér ákveðnar hættur á að eignamyndun útgerðarinnar á aflaheimildum styrkist í sessi. Ég tel hana ekki nothæfa í óbreyttri mynd og því hallast ég að því að farin verði einhver sú leið sem byggir á því besta úr hinum leiðunum tveimur. Svo mikið er víst að markmiðin með þeim breytingum sem fyrirhugaðar eru verða að nást - árangurinn þarf að verða varanlegur og hafinn yfir pólitískt dægurþras frá ári til árs.“

Greinilegt er á allri umræðu í framhaldi af skýrslunni, að fylgjendur núverandi kvótakerfis hafa sameinast um það sem kallað er samningaleið.  Sú leið gerir ráð fyrir innköllun allra aflamheimilda á einu bretti og gengur í því efni miklu lengra en fyrningarleiðin, sem gerði ráð fyrir innköllun á 20 árum. Aðalatriðið er hinsvegar endurúthlutunin og þar er engin sátt á milli hagsmunaaðila eða stjórnmálaflokka um útfærslur. Samningaleiðin byggir á álitsgerð sem Karl Axelsson og Lúðvík Bergsveinsson unnu fyrir nefndina. Núverandi handhafar kvótans og pólitískir bandamenn þeirra, svo sem Einar Guðfinnsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins, leggja áherslu á að aflaheimildir verði leigðar til langs tíma og með sem minnstum kvöðum, á meðan fulltrúar sjómanna og fleiri vilja binda leigusamninga skilyrðum sem koma í veg fyrir kvótabrask. Skýrsla nefndarinnar tekur ekki á þessum ágreiningsefnum.
Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.179.208 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón