01.09.2010 - 07:18
Nýtt fiskveiđiár hefst í dag
Nýtt fiskveiðiár hefst í dag. Á nýju kvótaári er úthlutað samtals 288 þúsund tonnum í hinum ýmsu tegundum, sem er 22 þúsund tonnum minna en á síðasta ári. Minnkunin stafar af minni úthlutun í ýsu og nokkrum flatfisktegundum og þeirri staðreynd að úthafsrækja var tekin út úr kvóta og veiðar á henni gefnar frjálsar frá og með deginum í dag. Vegna breytinga á þorskígildisstuðli nokkurra tegunda eykst heildarkvótinn umreiknaður í þoskígildistonn úr 257 þúsund tonnum í fyrra í 270 þúsund tonn nú. Stuðullinn er reiknaður út frá verðmæti tegundar samanborið við verðmæti þorsks.
Kvótahæsta höfnin er einsog í fyrra Reykjavík. Næst koma Vestmannaeyjar og Grindavík. Þessar þrjár hafnir fá í sinn hlut samtals 34% alls kvótans, úthlutað á skip með heimahöfn á þessum stöðum. Kvótahæstu fyrirtækin eru HB-Grandi hf, Brim hf. og Samherji hf.
Deila á Facebook
Kvótahæsta höfnin er einsog í fyrra Reykjavík. Næst koma Vestmannaeyjar og Grindavík. Þessar þrjár hafnir fá í sinn hlut samtals 34% alls kvótans, úthlutað á skip með heimahöfn á þessum stöðum. Kvótahæstu fyrirtækin eru HB-Grandi hf, Brim hf. og Samherji hf.
Á vef Fiskistofu má finna margar upplýsingar um veiðar í íslenskri landhelgi, meðal annars um úthlutun aflamarks á einstök skip fyrir fiskveiðiárið 2010/2011. Þar má sjá að flaggskip vestfirska flotans, frystitogarinn Júlíus Geirmundsson ÍS í eigu Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf. fær úthlutað 5.265 þorskígildistonnum á næsta fiskveiðiári. Úthlutað aflamark Júllans í þorski er 1990 tonn, 508 tonn af ýsu, 289 tonn af ufsa, 255 tonn af karfa og rúmlega eitt þúsund tonnum af grálúðu.
Deila á Facebook
Skrifađu athugasemd:
ATH. IP talan ţín er 38.107.179.208 og er skráđ međ athugasemdinni.















