Minningarsjóđur Margrétar Oddsdóttur stofnađur
Margrét Oddsdóttir fæddist á Ísafirði 3. október 1955 og útskrifaðist sem stúdent frá MÍ árið 1985. Margrét starfaði sem sérfræðilæknir á Landspítala frá 1994 til dauðadags. Hún var ráðinn fyrsti yfirlæknir að skurðlækningadeild Landspítalans 2003 eftir sameiningu allra skurðlækningadeilda sjúkrahúsanna í Reykjavík. Hún var skipuð dósent í almennum skurðlækningum við læknadeild HÍ 1995 og prófessor frá 2002. Margrét var mikilsvirtur skurðlæknir á alþjóðavísu, einkum sem brautryðjandi í kviðsjáraðgerðum og skrifaði m.a. um slíkar aðgerðir í eina þekktustu kennslubók í skurðlækningum sem gefin hefur verið út.
Lífslíkur kvenna með brjóstakrabbamein hafa batnað mikið síðastliðna áratugi. Vegna þess hve lífslíkur eru góðar er vaxandi áhersla skurðmeðferðar lögð á lífsgæði krabbameinsgreindra kvenna, m.a. með endursköpunaraðgerðum á brjóstum á sérhæfðum brjóstamiðstöðvum. Skurðmeðferð hefur því orðið umfangsmeiri, þar sem oft fer saman aðgerð til lækningar á krabbameini og aðgerð til að leiðrétta það lýti sem krabbameinsaðgerðin veldur. Ör þróun innan þessa sviðs kallar á meiri og betri aðstöðu fyrir bæði sjúklinga og meðferðarliða. Hlutverk Minningarsjóðs Margrétar Oddsdóttur er að styðja og styrkja þessa starfssemi.
Þau sem vilja veita þessu málefni lið, með því að gerast stofnaðilar að sjóðnum og heiðra minningu Margrétar með framlagi er bent á að kennitala sjóðsins er 700410-1610 og reikningsnúmer 0130-15-381828. Frekari upplýsingar um sjóðinn má fá hjá Þorvaldi Jónssyni dr.med. í síma 824-5592 eða í gegnum netfangið thorvjo@landspitali.is eða Magdalenu Sigurðardóttur í síma 456-3398. Einnig á vefnum brjóst.is þar má einnig finna skipulagsskrá sjóðsins.
Deila á Facebook
Skrifađu athugasemd:
ATH. IP talan ţín er 38.107.179.206 og er skráđ međ athugasemdinni.















